Hvað er aría og hvernig hljómar tenór? Um 220 nemendur í 1.–4. bekk úr grunnskólum Fjarðabyggðar fengu svör við þessum spurningum og fleiri til þegar þeir mættu í óperufræðslu í Eskifjarðarkirkju föstudaginn 23. október.
Fræðslan var unnin í samstarfi Menningarstofu Fjarðabyggðar og Þjóðaróperunnar í aðdraganda sýningarinnar Undir sömu stjörnu. Þar kynntu óperusöngvarar starf sitt, fluttu brot úr barnaóperum og sýndu hvernig má nota röddina til að túlka ólíkar tilfinningar og persónur.
Nemendur kynntust ýmsum hugtökum úr óperunni og veltu meðal annars fyrir sér hvað það kallast þegar tveir, þrír eða fjórir söngvarar syngja saman. Þá reyndi á eyrun þegar greina átti á milli raddgerða. Var það tenór sem söng eða kannski baritón?
Nemendur tóku undir
Það var þó ekki bara hlustað og giskað. Hápunktur heimsóknarinnar var samsöngur þar sem nemendur tóku undir með söngvurunum í laginu Hann Tumi fer á fætur úr Töfraflautunni.
Heimsóknin er liður í þróun fræðslustarfs Þjóðaróperunnar, sem stefnir að því að bjóða grunnskólanemendum á mismunandi skólastigum upp á óperufræðslu. Með leik, tónlist og virkri þátttöku fá börn og ungmenni tækifæri til að kynnast óperunni og prófa sjálf.
Hjördís Helga Seljan, kennsluráðgjafi hjá Fjarðabyggð, hafði umsjón með móttöku nemenda og skipulagi á staðnum í samstarfi við kennara hópanna, starfsfólk Þjóðaróperunnar og Menningarstofu Fjarðabyggðar.
Fjarðabyggð þakkar Þjóðaróperunni og öllum sem komu að heimsókninni fyrir skemmtilega stund með nemendum.






















