Fara í efni
13.08.2026 Fréttir, Menning

Þakkaði Guillaume Bazard fyrir góð kynni og samstarf

Deildu

Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, bauð Jónu Árnýju Þórðardóttur, bæjarstjóra Fjarðabyggðar, til árlegrar móttöku franska sendiráðsins í tilefni af þjóðhátíðardegi Frakka.

Bazard hefur gegnt embætti sendiherra Frakklands á Íslandi frá árinu 2022 en er nú að ljúka störfum hér á landi.

Góð tengsl hafa myndast milli sendiherrans og Fjarðabyggðar á undanförnum árum. Bazard heimsótti meðal annars Fáskrúðsfjörð á Frönskum dögum árið 2024, dvaldi þar yfir hátíðina og tók þátt í dagskrá hennar. Til stóð að hann kæmi einnig á Franska daga í sumar en vegna heimsóknar utanríkisráðherra Frakklands til Íslands á sama tíma átti hann þess ekki kost. 

uillaume Bazard, sendiherra Frakklands, og Michèle Kerckhof, varaborgarstjóri Gravelines, halda á blómsveig. Jón Björn stendur við hlið þeirra.
Jón Björn ásamt þeim Guillaume Bazard, sendiherra og Michéle Kerckhof, varaborgarstjóri Gravelines leggja blómsveig að minnisvarða um þá frönsku sjómenn sem létust við Íslandsstrendur. 

Í móttökunni færði Jóna Árný sendiherranum blómvönd fyrir hönd Fjarðabyggðar, þakkaði honum fyrir ánægjuleg kynni og gott samstarf á liðnum árum og óskaði honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.