Fara í efni
26.11.2026 Fréttir, Velferð og félagsþjónusta

Þarftu á stuðningi að halda í kjölfar áfalls?

Deildu
A view of the small orange Vattarnes Lighthouse in the East Fjords of Iceland

Að gefnu tilefni vill Fjarðabyggð minna á að hægt er að leita eftir áfallahjálp, ráðgjöf eða samtali. Samráðshópur um áfallahjálp á Austurlandi hefur tekið saman upplýsingar um hvert hægt er að leita.

  • Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) tekur við beiðnum um áfallahjálp á netfanginu afallahjalp@hsa.is.
  • Þjóðkirkjan býður samtal við prest eða djákna. Hægt er að senda erindi á afallahjalp@kirkjan.is.
  • Félagsþjónusta Fjarðabyggðar veitir ráðgjöf og upplýsingar í síma 470 9000.
  • Félagsþjónusta Múlaþings veitir ráðgjöf og upplýsingar í síma 470 0700.
  • Rauði krossinn veitir stuðning allan sólarhringinn í hjálparsímanum 1717 og á netspjallinu https://www.1717.is.