Opnunarviðburður Þjóðaróperunnar, „Undir sömu stjörnu“, verður í Eskifjarðarkirkju sunnudaginn 25. október kl. 15:00. Sýningin er unnin í samstarfi við Menningarstofu Fjarðabyggðar, Sinfóníuhljómsveit Austurlands og ásamt Óperukór Austurlands og er hluti af sýningarferð hinnar nýstofnuðu Þjóðaróperu um landið.
Í sýningunni er saga óperunnar rakin með söng, tónlist og leik, frá hirðsölum Ítalíu að Íslandsströndum. Söngvarar Þjóðaróperunnar flytja þekktar perlur óperubókmenntanna og leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna. Dagskráin höfðar bæði til þeirra sem þekkja óperu vel og þeirra sem eru að kynnast henni í fyrsta sinn.
Söngvarar Þjóðaróperunnar og leikarar Þjóðleikhússins taka þátt í öllum fimm sýningunum en á hverjum stað kemur jafnframt fram tónlistarfólk úr heimabyggð. Með sýningarferðinni vill Þjóðaróperan ná til landsins alls og byggja upp samstarf við menningarstofnanir og listafólk.
„Við hlökkum til að taka á móti Þjóðaróperunni í Eskifjarðarkirkju. Það er ánægjulegt að hún hefji starfsemi sína með sýningum víða um land og að Sinfóníuhljómsveit Austurlands taki þátt í viðburðinum hér. Þetta er gott tækifæri fyrir íbúa til að njóta óperu í heimabyggð,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

Samstarf við tónlistarfólk á Austurlandi
Þátttaka Sinfóníuhljómsveitar Austurlands gefur tónlistarfólki á svæðinu tækifæri til að vinna með söngvurum, leikurum og listrænum stjórnendum Þjóðaróperunnar og Þjóðleikhússins. Samstarfið eflir tengsl og skapar reynslu sem getur nýst í fleiri verkefnum.
„Það er ekki hægt að horfa fram hjá því hversu mikið er að gerast í tónlistar- og sviðslistalífi á Austurlandi. Hér eru ekki aðeins komnir góðir innviðir fyrir sviðslistir, líkt og í Eskifjarðakirkju og Sláturhúsinu á Egilsstöðum, heldur einnig heil sinfóníuhljómsveit, að ógleymdum öllum þeim hæfileikaríku söngvurum sem búa fyrir austan,“ segir Finnur Bjarnason, óperustjóri.
Yfir 100 einstaklingar koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Menningarstofa Fjarðabyggðar kemur að aðstöðu, tækniþjónustu, kynningu og móttöku gesta. Undirbúningurinn er unninn í nánu samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Austurlands, sóknarnefnd og aðra samstarfsaðila á svæðinu.
Þórhildur Tinna Sigurðardóttir, forstöðumaður Menningarstofu Fjarðabyggðar, segir að mikil vinna hafi verið lögð í sýninguna.
„Í þeirri vinnu felast verðmæti sem Menningarstofa Fjarðabyggðar vill byggja áfram á: þekking, samstarfstengsl og ný tækifæri fyrir tónlistarfólk á svæðinu.“

224 börn í Fjarðabyggð kynnast óperulist
Heimsókn Þjóðaróperunnar nær einnig til barna í sveitarfélaginu. Föstudaginn 23. október munu 224 börn sækja fræðsluerindi sem byggir á efni sýningarinnar.
Fræðslan fer fram í þremur hópum fyrir hádegi og er undirbúin í samstarfi Menningarstofu, kennsluráðgjafa og stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu Fjarðabyggðar. Þannig tengist heimsóknin skólastarfi og gefur börnum tækifæri til að kynnast óperulist í heimabyggð.
„Búseta á ekki að ráða því hvaða list við fáum að upplifa. Það er því mikið fagnaðarerindi að íbúar Austurlands fái að njóta þessarar sýningar og deila þeirri menningarupplifun með öðru áhugafólki um óperu um land allt,“ segir Þórhildur Tinna.
Horft til áframhaldandi samstarfs
Menningarstofa vill byggja áfram á þeirri reynslu og tengslum sem verða til við verkefnið. Áhugi er á áframhaldandi samtali við Þjóðaróperuna um árleg fræðsluverkefni og mögulega aðra stóra sýningu á næstu árum. Samstarf við önnur sveitarfélög og menningarstofnanir gæti jafnframt stutt við sýningarferðir og gefið fleirum tækifæri til að njóta óperu í heimabyggð.
„Undir sömu stjörnu“ verður frumsýnt í Hofi á Akureyri 18. október. Þaðan liggur leiðin til Eskifjarðar 25. október, í Hljómahöllina í Reykjanesbæ 1. nóvember og Skálholtsdómkirkju 8. nóvember. Síðasta sýningin verður í Þjóðleikhúsinu 15. nóvember.
Miðasala á sýninguna er á Tix.is.
