Um 72% aðspurða eru ánægð með að búa í Fjarðabyggð en heilt yfir þá eru niðurstöður Fjarðabyggðar heldur að lækka milli mælinga, en þó eru nokkrir flokkar sem hækka. Það er ljóst að talsverð sóknarfæri eru í flestum flokkum, en svona könnun er mikilvægur liður í því að átta sig betur á stöðu mála í viðhorfi íbúa til ólíkra málaflokka.
Niðurstaða könnunarinnar var kynnt á bæjarráðsfundi í vikunni, og mun vinna með hana halda áfram á næstunni, með það að markmiði að bæta þjónustu sveitarfélagsins til framtíðar.
Heildarniðustöður könnunarinnar má finna hér: Þjónusta sveitarfélaga 2022