Fara í efni
01.04.2023 Fréttir

Þjónustumiðstöð almannavarna verður opnuð í Neskaupstað mánudaginn 3. apríl

Deildu

Opnunartími þjónustumiðstöðvar öðru hvorum megin við páska verður auglýstur skömmu eftir helgi. Þjónustumiðstöðin verður opin eins lengi og hennar er þörf.

Verkefni þjónustumiðstöðvar felast í stuðningi við íbúa og aðra sem á einhvern hátt hafa orðið fyrir áhrifum ofanflóða og ofanflóðahættu á Austfjörðum. Stuðningurinn felur meðal annars í sér upplýsingagjöf og fræðslu af ýmsu tagi og Rauði krossinn mun halda áfram að bjóða upp á sálfélagslegan stuðning í þjónustumiðstöðinni. Lögð er áhersla á að þjónustumiðstöðin stendur öllum á Austfjörðum til boða og þau sem hafa ekki tök á að koma í heimsókn eða kjósa að gera það ekki geta haft samband í gegnum síma eða í netpósti.

Íbúar á Austfjörðum eru hvattir til að nýta sér þjónustumiðstöðina með öll þau erindi sem á þeim hvíla varðandi atburði síðustu daga. Heitt er á könnunni fyrir þau sem hafa tök á að mæta í Egilsbúð en einnig er hægt að hafa samband við þjónustumiðstöðina í síma 855 2787 og í netfangið fyrirspurnir@almannavarnir.is