Rithöfundurinn Þorgrímur Þráinsson heimsótti Bókasafnið á Reyðarfirði fimmtudaginn 17. september og las úr nýrri skáldsögu sinni, Ég kom til að gráta. Að upplestrinum loknum ræddi hann við börn og ungmenni um bækur sínar og mikilvægi lesturs.
Þorgrímur hefur nýlega sent frá sér tvær bækur. Auk Ég kom til að gráta hefur hann gefið út barnabókina Litli Kristur, sem ætluð er lesendum á miðstigi.
Saga sem hefur fylgt höfundi í 37 ár
Ég kom til að gráta er skáldsaga fyrir fullorðna og gerist í Ólafsvík. Við upplesturinn sagði Þorgrímur frá tilurð bókarinnar, en hugmyndin að henni hefur fylgt honum í 37 ár.
Heimur bókarinnar ætti að vera mörgum íbúum sjávarbyggða kunnuglegur. Þar er meðal annars fjallað um óvissuna sem fylgir því þegar sjómenn eru úti í slæmu veðri, samfélag sem á mikið undir útgerðinni og þann tíma þegar skólastarfi var jafnvel frestað svo allir gætu hjálpast að við að bjarga verðmætum þegar mikið aflaðist.
Bókin markar jafnframt ákveðin tímamót fyrir Þorgrím, sem hefur fyrst og fremst verið þekktur fyrir bækur sínar fyrir börn og ungmenni.
Bækurnar fylgja honum hvert sem hann fer
Að upplestrinum loknum gaf Þorgrímur sér góðan tíma til að ræða við börn og ungmenni um bækur, lestur og ritstörfin.
