Það var líflegt við höfnina í Neskaupstað fimmtudaginn 24. september þegar þrír ísfisktogarar komu til löndunar. Birtingur NK, Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu samtals rúmlega 170 tonnum af fiski. Á sama tíma var síldarlöndun í fullum gangi.
Löndun úr Birtingi hófst snemma um morguninn. Skipið kom með rúmlega 80 tonn, að mestu þorsk og karfa. Bergey var með rúmlega 60 tonn og Vestmannaey rúmlega 30 tonn. Uppistaðan í afla þeirra beggja var þorskur og ýsa.
Það er ekki á hverjum degi sem þrír togarar landa í Neskaupstað sama dag. Skipin tvö frá Vestmannaeyjum höfðu verið í stuttum veiðiferðum og samkvæmt upplýsingum frá Síldarvinnslunni var ólíklegt að þau héldu aftur til veiða fyrr en á laugardag vegna veðurs.
Heimild: Síldarvinnslan.
