Margt það sem við höfum lagt á okkur á COVID tímanum, s.s. takmarkanir á hópamyndun og breytt hegðun, er talið skýra fækkun öndunarvegasýkinga árið 2020 sem aftur er talin ástæða mikið minni sýklalyfjanotkunar það ár, sjá talnabrunn landlæknis: Talnabrunnur_Januar_2021.pdf (landlaeknir.is) Þá hefur hin árlega inflúensa ekki herjað á okkur enn.
Gleðjumst því, enda tilefni til, en höldum vöku okkar. Förum sem fyrr eftir gildandi leiðbeiningum og reglum. Reynum líka í sameiningu að draga lærdóm af COVID-reynslunni, íhugum hvort og hvað af því sem hún kenndi okkur við viljum þróa og jafnvel festa í sessi í samfélaginu. Við erum á þessum góða stað vegna samráðs og samvinnu okkar allra. Höldum því áfram