Fara í efni
19.09.2021 Fréttir

Tilkynning frá aðgerðarstjórn á Austurlandi 19. september

Deildu

Boðið verður upp á sýnatöku á Reyðarfirði í dag, sunnudaginn 19. september frá kl. 12 – 13. Þeir sem hafa einhver einkenni eða telja sig hafa verið í samskiptum við smitaðan aðila eru hvattir til að mæta.

Smitrakningarteymi hefur sent frá sér upplýsingar um rétt viðbrögð þeirra sem eru í sóttkví eða hafa á annan hátt verið útsett fyrir smiti, um það hvaða reglur gilda. Viðbúið er að fleiri bætist í þann hóp á næstunni. Á heimasíðunni www.covid.is má finna frekari upplýsingar um reglur sem gilda um sóttkví og einangrun.

Við erum að sigla í gegnum svolítið öldurót þessa stundina en sjáum til lands. Það mun þó reyna á okkur næstu daga - gætum því öll fyllstu varúðar og höldum áfram að feta okkur saman að lokatakmarkinu.