Flutningur hins veika var framkvæmdur í samræmi við fyrirfram ákveðið skipulag. Hann gekk snurðulaust fyrir sig. Aðgerðastjórn telur ekki ástæðu til að óttast dreifingu smits vegna þessa. Þeir skipverjar um borð sem ekki hafa greinst með smit munu skimaðir á morgun í þriðja sinn frá komu skipsins 20. mars síðastliðinn. Ætti niðurstaða að liggja fyrir seinnipart morgundagsins eða á þriðjudag. Frá því smitin voru staðfest fyrir viku síðan er allt gert um borð til að koma í veg fyrir að smit berist frá smituðum til ósmitaðra skipverja.
28.03.2021
Tilkynning frá aðgerðarstjórn á Austurlandi 28. mars
