Fara í efni
12.05.2020 Fréttir

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 12. maí

Deildu

Fyrirspurnir hafa borist aðgerðastjórn um þá farþega er koma til landsins frá Norrænu, hvort þeirra bíði sóttkví. Samkvæmt gildandi fyrirmælum fara allir ferðamenn er koma til landsins, hvort heldur íslenskir eða erlendir, í fjórtán daga sóttkví við komu til landsins. Þeir tilkynna fyrir komu um dvalarstað hér á landi og halda beina leið þangað án samskipta við aðra á leið sinni. Smithætta vegna þeirra á því engin að vera. Sóttkví í hjólhýsi, húsbílum eða slíku er óheimil. Sóttkví á hóteli er heimil með skilyrðum.