Fara í efni
19.10.2020 Fréttir

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 19. október

Deildu

Von er á Norrænu til Seyðisfjarðar í fyrramálið. Í ljós kom skömmu eftir brottför ferjunnar frá Hirtshals í Danmörku á laugardag að tveir í áhöfn er komu þar um borð voru smitaðir. Strax voru gerðar ráðstafanir varðandi einangrun þeirra auk þess sem ellefu áhafnarmeðlimir aðrir þurftu í sóttkví. Allir fóru þeir svo frá borði við komu til Færeyja þar sem sóttkví hélt áfram og tvímenningarnir fengu aðhlynningu. Þeir eru ekki með einkenni smits og ekki talin ástæða til að ætla að farþegar hafi smitast. Sýni verða tekin af öllum farþegum samkvæmt venju við komu til Seyðisfjarðar sem svo verða í sóttkví þar til niðurstaða liggur fyrir í seinni skimun að fimm til sex dögum liðnum. Öllu verklagi verður því fylgt hér á landi samkvæmt venju en sérstök aðgát viðhöfð engu að síður í ljósi þessa.

Áhöfn Norrænu sem hélt áfram til Íslands var skimuð í Færeyjum og liggur niðurstaða fyrir. Enginn greindist með smit.