Fara í efni
20.11.2020 Fréttir

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 20. nóvember

Deildu

Aðgerðastjórn minnir á að ekkert okkar vill smitast og að smit geta komið upp jafnvel þó ítrustu aðgæslu sé gætt. Við það verður ekki að fullu ráðið sem kallar á að í orði og athöfnum sýnum við þeim sem smitast samkennd og tillitssemi. Hvernig við sem samfélag bregðumst við smiti segir mikið um það hverrar gerðar við erum og þar höfum við staðið okkur vel síðustu mánuði. Fyrir það þakkar aðgerðastjórn og treystir á áframhaldandi samstöðu. Þannig sigrumst við á þessum faraldri saman.