Fara í efni
07.04.2020 Fréttir

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 7. apríl

Deildu

Á sama tíma og niðurstöður gefa ágætar vonir um þróun smita minnir aðgerðastjórn Almannavarnanefndar Austurlands á að lítið má út af bregða til að þeim fjölgi hratt.

Þar sem góð vísa er aldrei of oft kveðin er dags- og páskaskipanin því þessi:

  • Verum heima
  • Virðum tveggja metra regluna
  • Förum sjaldan í matvörubúðir, gerum stærri innkaup í hvert sinn
  • Verum góð við afgreiðslufólk, fylgjum leiðbeiningum með brosi á vör
  • Gerum þetta saman!

Hvað varðar niðurstöður úr skimun Íslenskrar erfðagreiningar þá eru þær ókomnar. Þær munu birtar um leið og þær berast.