Fara í efni
13.01.2022 Fréttir

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi: Kennsla fellur niður í grunnskólum í Neskaupstað, Eskifirði og Reyðarfirði 14. janúar

Deildu

Gripið er til er þessara aðgerða til að reyna að draga úr útbreiðslu smita og ekki síst til að létta álagi af heilbrigðiskerfinu á Austurlandi meðan náð er utan um dreifingu smita og smitrakningu. Staðan varðandi opnun skólanna verður tekin um helgina og eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að fylgjast með tilkynningum þar um. Þá hvetur aðgerðarstjórn íþróttafélög til að fella niður íþróttaæfingar fram yfir komandi helgi meðan ástand þetta varir. Þegar hafa ýmis félög brugðist við og fellt niður æfingar í ljósi útbreiðslu smita. Fyrir það ber að þakka samstöðu íbúa Austurlands í þeim málum eins og svo oft áður í faraldrinum.

Ástandið í öðrum skólastofnunum Fjarðabyggðar og Austurlands er betra og því er ekki talin ástæða til að loka þar eins og sakir standa en áfram verður fylgst náið með stöðunni á hverjum stað fyrir sig.

Íbúar eru sem fyrr hvattir til að mæta í sýnatöku finni þeir til einkenna eða telji sig hafa verið í samskiptum við smitaðan einstakling. Þá eru nemendur og kennarar ofannefndra skóla hvattir til þess að koma í sýnatöku á morgun, föstudaginn 14. janúar. Á morgun er sýnataka í boði á Reyðarfirði frá kl. 9 – 10:30 og á Egilsstöðum kl. 12 – 13:30. Um helgina er stefnt að því að hafa auka opnun í sýnatöku en ekki búið að staðfesta mönnun. Opnunartími verður auglýstur um leið og hann liggur fyrir.