Pólskar samtímakvikmyndir, barnamynd og skapandi vinnustofa voru meðal þess sem gestir sjöttu pólsku kvikmyndahátíðarinnar í Fjarðabyggð fengu að njóta dagana 16.–18. október. Hátíðin fór fram í Valhöll á Eskifirði og voru skráðar alls 236 heimsóknir á átta dagskrárliði helgarinnar.

Hátíðin er gjarnan kölluð „Minnsta pólska kvikmyndahátíð í heimi“. Rafał Jan Koczanowicz, listrænn stjórnandi hennar, hafði umsjón með skipulagningu og samsetningu dagskrár í samstarfi við Menningarstofu Fjarðabyggðar og Valhöll.
Á þremur dögum voru sýndar tólf kvikmyndir í sjö sýningarlotum. Þar mátti finna heimildarmyndir, gamanmyndir, stuttmyndir og teiknimyndir. Flestar myndanna voru frá árinu 2025 en einnig var sýnd kvikmyndin The Linnet frá 1982.
Sögur um að tilheyra
Dagskráin beindi sjónum að pólsku samfélagi og þeim breytingum sem þar eiga sér stað. Myndirnar fjölluðu meðal annars um fólksflutninga, kynslóðaskipti og tilfinninguna fyrir því að tilheyra. Þau viðfangsefni eiga sér líka hljómgrunn í fjölmenningarlegu samfélagi Fjarðabyggðar.
„Við viljum að hátíðin sé staður þar sem fólk hittist, nýtur góðra kvikmynda og fær ný sjónarhorn á samfélagið. Sögurnar eru pólskar en spurningarnar um að tilheyra, flytja milli landa og finna sinn stað eru mörgum hér kunnuglegar. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá börnin taka þátt og fá tækifæri til að njóta kvikmynda á pólsku,“ segir Rafał Jan Koczanowicz, listrænn stjórnandi hátíðarinnar.
Auk sýninganna stýrðu kvikmyndagerðarkonurnar Sara Morawska og Weronika Jędrzejczak vinnustofunni „Tilviljun og óvænt atvik í kvikmyndum og myndbandslist“. Þá gafst gestum tækifæri til óformlegra samtala við skipuleggjendur alla helgina.
Yngri kynslóðin tók þátt
Pólski skólinn á Reyðarfirði skipulagði heimsókn í Valhöll þar sem börnin sáu myndina Pixie. The New Beginning. Heimsóknin gaf þeim tækifæri til að njóta kvikmyndar á pólsku og taka þátt í hátíðinni saman.
Fyrirtæki á svæðinu lögðu einnig sitt af mörkum. Kaffi Kvörn sá um kaffiveitingar alla þrjá dagana og Sesam Brauðhús gaf sælgæti fyrir sýningar á laugardegi og sunnudegi.
Ókeypis var á allar sýningar og vinnustofuna. Allar kvikmyndirnar voru sýndar með enskum texta svo sem flestir gætu notið þeirra. Hátíðin skapaði þannig tækifæri fyrir íbúa af ólíkum uppruna til að hittast, kynnast pólskri kvikmyndagerð og njóta menningar saman.
