Barnaheill og Geðhjálp heimsækja Fjarðabyggð 6. október og ræða við nemendur í 10. bekk um líðan, samskipti og tengsl. Um kvöldið verður opinn fundur í safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju kl. 19:30–21:00, þar sem helstu niðurstöður samtalsins verða kynntar. Dagskránni lýkur með örtónleikum Unnsteins Manuels.
Heimsóknin er skipulögð í samstarfi við grunnskólana í Fjarðabyggð og fjölskyldusvið. Hún er hluti af ferð Barnaheilla og Geðhjálpar um landið í haust og byggir á ungmennaþingum Barnaheilla og Geðlest Geðhjálpar.
Rödd ungmenna í forgrunni
Nemendur í 10. bekk frá Reyðarfirði, Neskaupstað, Eskifirði og Fáskrúðsfirði koma saman í safnaðarheimilinu kl. 09:00–11:30. Þar vinna þau í hópum með stuðningi hópstjóra og ræða meðal annars um líðan, heilbrigð og óheilbrigð samskipti og jákvæða þætti sem mætti styrkja í samfélaginu.
Hópstjórar taka saman helstu atriði úr samtalinu. Að hópavinnunni lokinni verður nemendum boðið í pizzaveislu á vegum Barnaheilla og Geðhjálpar.

Opið samtal um kvöldið
Á kvöldfundinum kynna nemendur og/eða hópstjórar það helsta sem kom fram í hópavinnunni. Í framhaldinu verður rætt um niðurstöðurnar og hvað hægt sé að gera til að styrkja líðan og tengsl, bæði í samfélaginu og á heimilum.
Nemendur, foreldrar og forsjáraðilar eru hvött til að mæta, ásamt öðru áhugafólki. Sérstaklega er hvatt til þátttöku sveitarstjórnarfólks, starfsfólks félags- og velferðarmála og lögreglu. Öll eru velkomin, en dagskráin er ekki talin henta börnum yngri en 12 ára.
Dagskrá kvöldfundar 6. október
- 19:30 – Barnaheill og Geðhjálp opna fundinn og kynna dagskrána.
- 19:40 – Hópstjórar og/eða nemendur kynna niðurstöður hópavinnunnar.
- 20:00 – Samtal um niðurstöður.
- 20:20 – Jákvæð skilaboð fundarins – hvað er hægt að gera?
- 20:45 – Örtónleikar með Unnsteini Manuel.
- 21:00 – Fundi lýkur.
