Fara í efni
12.02.2026 Fréttir, Skólar

Tröllin taka yfir Egilsbúð

Deildu

Það er búið að vera líf og fjör í Egilsbúð þessa dagana, þegar 9. bekkur Nesskóla setti á laggirnar Tröll. Verkið byggir á Trolls eftir Jonathan Aibel og Glenn Berger, leikgerðina annaðist Kolbrún Lilja Guðnadóttir og Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir, aðstoðarskólastjóri í Nesskóla, leikstýrir uppsetningunni. Þórfríður segir hugmyndina hafa verið lengi í gerjun og í raun beðið eftir árgangi með nægilega mörgum nemendum. 

Handritið beið eftir sínum bekk

„Ég fékk handritið í hendurnar í kringum 2021 eða 2022 og ætlaði að skoða það fyrir annan bekk. En þegar ég sá hversu margir leikarar væru að tala í leikritinu sá ég strax að það myndi ekki ganga fyrir þann bekk sem ég var með í huga,“ segir Þórfríður.

Hún hafi þó strax vitað að þessi árgangur gæti borið verkið, og því hafi hún einfaldlega beðið.

„…en vissi að þessi árgangur væri nægilega stór fyrir þetta verkefni. Svo ég bara beið þar til það var komið að þeim,“ segir hún og bætir við að fleiri hugmyndir hafi komið upp, en Tröll hafi orðið ofan á: „Við vorum flest sammála um þetta verk.“

Heilu tröllasveitirnar á bak við tjöldin

Í árgagnginum eru 14 nemendur þá eru mun fleiri sem koma að sýningunni. Þórfríður segir 13 nemendur vera þátttakendur að þessu sinni, auk eru tíu nemendur úr 4.–6. bekk sem fylla upp í atriði og skapa líf á sviðinu.

„Foreldrar spila stórt hlutverk í uppsetningunni og sjá um sviðsmynd, búninga, leikmuni, hár og smink,“ segir hún. Auk þess er tæknivinna með aðkomu foreldra ásamt utanaðkomandi aðstoð.

,,Jóhann Páll Guðjónsson hefur aðstoða okkur með ljósin,“ segir Þórfríður og áætlar að samanlagt séu um 30–40 manns sem koma að uppsetningunni.

Leikarar ásamt Þórfríði leikstjóra sýningarinnar

Undirbúningurinn hefur gengið vel

Undirbúningurinn hefur að sögn Þórfríðar gengið mjög vel, þótt tæknin hafi stundum reynt á.

„Tæknin hefur eitthvað verið að stríða okkur en leikararnir láta það ekkert á sig fá og halda bara áfram eins og ekkert hafi í skorist,“ segir hún og hrósar hópnum: „Þau eru að standa sig sjúklega vel.“

Hún bendir líka á að verkefnið sé stórt og krefjandi, enda sé þetta „mikill íþróttabekkur“ og því þurfi oft að púsla æfingum og dagskrám saman. En stuðningurinn hafi verið mikill. Íþróttafélögin hafa tekið vel í þetta verkefni og fá þau alltaf smá ,,brake" fyrir sýningar. ,,Erum við afar þakklát fyrir það,“ segir hún. Einnig hafi gott samstarf verið á sýningardögum við félagsmiðstöðina og þá sem nýta Egilsbúð. 

Twistar í talinu og tvö lög lengd

Sýningin byggir í megindráttum á fyrstu Trolls myndinni, en Þórfríður segir að í talinu séu ýmsir skemmtilegir snúningar.

„Sýningin er í raun bara gróf samantekt úr fyrstu myndinni The Trolls… En það eru allakonar twist í talinu sem hefur reynst vel,“ segir hún.

„Ég bað pabba minn um að lengja tvo texta í leikritinu sem þýðir að það eru tvö lög lengri en eru í myndinni,“ segir Þórfríður. Hún segir föður sinn hafa lagt sig fram við að ná samhengi og stemningu: „Hann sat í nokkra daga og horfði á myndina til að fá smá samhengi í textann og græjaði það fyrir okkur.“

Markmiðið að fólk hafi gaman og muni eftir kvöldinu

Þegar spurt er hvað hún vilji að áhorfendur taki með sér út úr sýningunni, er svarið einfalt og skýrt:

„Við viljum bara að fólk hafi gaman og að hennar verði minnst eins og allar hinar sýningarnar árin á undan.“

Og ef markmiðið er hlátur, gleði og smá „VÁ“, þá virðist það vera að takast.

„Bara stórt VÁ, klapp á bakið og vel gert!“

Einn sýningargestur orðaði upplifunina svona eftir frumsýningu:

„Þessir krakkar, foreldrar, systkin og síðast en ekki síst Þórfríður Soffía leikstjóri hafa sl. vikur lagt blóð, svita og tár í leiksýninguna Tröll sem frumsýnt var í kvöld í Egilsbúð. Bara stórt VÁ, klapp á bakið og vel gert öll sem eitt er komu að þessari sýningu.

Lokasýningar í dag í Egilsbúð

Að sögn Þórfríðar eru sýningarnar fimm talsins  og lokasýningar fara fram í dag, fimmtudaginn 12. febrúar, í Egilsbúð:

  • kl. 16:00
  • kl. 20:00

Tröllin eru sem sagt ekki búin að syngja sitt síðasta.. alveg strax.