Fara í efni
12.08.2026 Fréttir

Tvær heiðurskonur 100 ára á árinu

Deildu

Tvær konur í Fjarðabyggð urðu 100 ára á árinu 2026, þær Stefanía Sigurbjörnsdóttir á Eskifirði og Auður Bjarnadóttir frá Norðfirði.

Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri heimsótti þær 18. júní síðastliðin og færði þeim blóm í aðdraganda kvenréttindadagsins 19. júní. Heimsóknin varð um leið kærkomið tilefni til að rifja upp langa ævi þeirra og sterka tengingu við samfélagið í Fjarðabyggð.

Stefanía hefur búið á Eskifirði í meira en 70 ár

Stefanía Sigurbjörnsdóttir fæddist 22. febrúar 1926 í Stöð á Stöðvarfirði og ólst þar upp. Hún fór ung að heiman og starfaði víða um land, meðal annars á Akureyri, í Mývatnssveit, á Hvanneyri, í Reykjavík, á Hallormsstað og í Sandgerði. Þar kynntist hún síðar eiginmanni sínum, Eskfirðingnum Kristjáni Jóhanni Guðmundssyni.

Stefanía Sigurbjörnsdóttir ásamt Jónu Árný og Ragnari Sigurðssyni. 

Þau gengu í hjónaband árið 1953 og fluttu til Eskifjarðar, þar sem þau keyptu húsið Hvítárvelli, nú Smiðjustíg 4. Þar bjuggu þau allan sinn búskap í meira en hálfa öld. Kristján lést árið 2010 en Stefanía dvelur nú á Hulduhlíð á Eskifirði. Hún hefur því átt heimili á Eskifirði í meira en 70 ár. 

Stefanía vann fjölbreytt störf á Eskifirði, meðal annars hjá sláturhúsinu, Hulduhlíð, Hótel Öskju og Hraðfrystihúsi Eskifjarðar. Hún var jafnframt virk í félagslífi, meðal annars hjá Slysavarnafélaginu, kvenfélaginu, félagi eldri borgara og í kórastarfi. 

Stefanía og Kristján eignuðust fjögur börn og fjölskyldan hefur stækkað mikið síðan. Stefanía á 11 barnabörn og 17 barnabarnabörn. 

Auður hefur búið nánast alla sína tíð á Norðfirði

Auður Bjarnadóttir fæddist á Norðfirði 25. júní 1926. Bernskuárin voru þó víða, meðal annars á Akureyri, Siglufirði og Ólafsfirði. Árið 1937 flutti fjölskyldan að Krossi í Mjóafirði og síðar að Reykjum, áður en hún flutti aftur til Norðfjarðar. 

Árið 1946 giftist hún Aðalsteini Halldórssyni, kaupmanni og síðar bónda í Skálateigi í Norðfirði. Þau eignuðust fimm börn og varð fjölskyldan stór með árunum. Auður á 14 barnabörn og 41 barnabarnabarn. 

Auður Bjarnadóttir og Jóna Árný

Auður sinnti fjölskyldunni samhliða störfum við verslun og búskap í Skálateigi og starfaði síðar meðal annars við saltfisk og hjá kaupfélaginu Fram. Hún hefur alla tíð verið vel lesin og fróð um menn og málefni og handavinna verið eitt af hennar helstu áhugamálum. Hún tók einnig virkan þátt í félagsstarfi, meðal annars í Kvenfélaginu Nönnu, kvennadeild Slysavarnafélagsins og félagi eldri borgara, auk þess sem hún sat í nefndum fyrir sveitarfélagið. 

Auður og Aðalsteinn voru jafnframt virk í skógræktarstarfi og tóku meðal annars þátt í skiptivinnuferðum með skógræktarfélögum í Noregi. Aðalsteinn lést árið 1998. Eftir það hélt Auður áfram heimili sínu á Norðfirði þar sem hún sinnti fallegum garði sínum , en flutti hún síðar í íbúð fyrir aldraða að Breiðabliki en dvelur nú á Uppsölum á Fásksrúðsfirði. Auður ferðaðist mikið á meðan kraftar leyfðu, einkum um Evrópu en einnig um Íslendingaslóðir í Norður-Ameríku. 

„Það var einstaklega ánægjulegt að fá að heimsækja þessar tvær heiðurskonur, færa þeim blóm og eiga með þeim góða stund. Fyrir mig var sérstaklega dýrmætt að rifja upp gamla tíma með Auði úr sveitinni þegar ég var barn og heyra Stefaníu segja frá sinni löngu sögu á Eskifirði. Það var síðan sannarlega innblástur að vera nýbúin að ræða við þessa aldursforseta Fjarðabyggðar þegar við héldum upp á kvenréttindadaginn daginn eftir,“ segir Jóna Árný Þórðardóttir.

Stefanía og Auður eru elstu íbúar Fjarðabyggðar og hafa hvor með sínum hætti orðið vitni að miklum breytingum í samfélaginu á langri ævi. Saga þeirra er um leið hluti af sögu byggðarlaganna og samfélagsins sem þær hafa tilheyrt í hundrað ár.