Fara í efni
25.09.2026 Fréttir, Skólar

Um 500 nemendur kynntust störfum á Starfamessu Austurlands í Neskaupstað

Deildu

Starfamessa Austurlands fór fram í Íþróttahúsinu í Neskaupstað 24. september. Þar fengu um 500 nemendur tækifæri til að ræða við fólk úr fyrirtækjum og stofnunum og kynnast fjölbreyttum störfum á Austurlandi.

Á messuna komu nemendur úr 9. og 10. bekkjum grunnskóla víðs vegar af Austurlandi, auk nemenda á fyrsta og öðru ári í framhaldsskólum. Yfir 100 manns kynntu störf sín og um 30 starfsmenn skólanna fylgdu nemendunum.

„Markmiðið er fyrst og fremst að unga fólkið okkar fái að sjá með eigin augum hversu fjölbreytt atvinnulífið á Austurlandi er. Hér eru störf sem þau þekkja vel en líka fjölmörg störf sem þau hafa kannski aldrei leitt hugann að,“ segir Páll Baldursson, verkefnastjóri hjá Austurbrú.

Hluti af náms- og starfsfræðslu

Starfsfólk skólanna undirbjó nemendur fyrir heimsóknina og mun vinna áfram með upplifun þeirra á næstu vikum. Með þátttöku sinni gáfu fyrirtæki og stofnanir nemendum færi á að spyrja um störfin, menntunina og færnina sem nýtist í þeim. 

/cdn/media/IMG_3574.jpg?v=1790338307%2C0.4924%2C0.325
Hátt í fimmhundruð nemendur mættu á Starfamessun

„Það er dýrmætt fyrir nemendur að fá að hitta fólk sem vinnur ólík störf og spyrja sjálf um það sem vekur áhuga. Dagurinn gefur þeim hugmyndir sem skólarnir geta síðan unnið áfram með,“ segir Líneik Anna Sævarsdóttir, stjórnandi fræðslumála og skólaþjónustu hjá Fjarðabyggð. 

Starfamessan er haldin að frumkvæði sveitarfélaganna á Austurlandi í samstarfi við Austurbrú, Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólann á Egilsstöðum. Hún var fyrst haldin á Egilsstöðum árið 2024 og stefnt er að því að halda hana á tveggja ára fresti.