Fara í efni
18.10.2017

Umfjöllun um Fjarðabyggðarhafnir í þættinum Hafnir Íslands

Deildu

Í þættinum var rætt við Steinþór Pétursson, framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna, um þá miklu starfsemi sem fram fer í höfnum Fjarðabyggðar á ári hverju og framtíð hafnana.

Auk þess var í þættinum talað við Pál Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóra, um mikilvægi Fjarðabyggðarhafna fyrir atvinnulífið í Fjarðabyggð og þau miklu áhrif sem þær hafa á samfélagið. Hann ræddi einnig um þær framkvæmdir sem farið hefur verið í hjá Fjarðabyggðarhöfnum undanfarinn ár.

Smári Geirsson stiklaði svo á stóru í sögu hafnana og að lokum var rætt við Kristínu Ágústdóttur stjórnarmann í Hafnarstjórn Fjarðabyggðar.

Hægt er að horfa á þáttinn inná vef Hringbrautar með því að smella hér.