Í september gafst íbúum Fjarðabyggðar kostur á því að senda inn tilnefningar til umhverfisverðlauna í þremur flokkum. Þetta er í annað sinn sem sveitarfélagið veitir viðurkenningar fyrir snyrtimennsku og fegrun umhverfisins. Viðurkenning er veitt í þremur flokkum eða fyrir snyrtilegustu lóð við íbúðarhús, snyrtilegasta umhverfi íbúðarhúss í dreifðri byggð og snyrtilegustu fyrirtækjalóð.
Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri, mun afhenda viðurkenningarnar og að athöfn lokinni verður gestum boðið að þiggja veitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.