Fara í efni
29.10.2021 Fréttir

Undirrituð viljayfirlýsing um samstarf milli Rotterdamhafnar og Fjarðabyggðarhafna

Deildu

Um var að ræða fundi og málstofur sem hollenska ríkið bauð Fjarðabyggðarhöfnum til, ásamt þátttakendum frá fjórtán öðrum löndum í heiminum þar sem líklegt þykir að framleiðsla vetnis og grænna orkugjafa muni fara fram. Jafnframt sóttu hollensk stjórnvöld, fyrirtæki og hafnaryfirvöld þar í landi, viðburði vikunnar.

Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri og Birgitta Rúnarsdóttir verkefnastjóri hafna sóttu viðburðina fyrir hönd Fjarðabyggðarhafna, sem að sögn Jóns Björns voru einkar gagnlegir og fræðandi.

Jón Björn telur að undirritun viljayfirlýsingarinnar sé mjög mikilvægt skref í þróun á hugsanlegri framleiðslu á vetni og rafeldsneyti í grænum orkugarði sem stefnt er á að settur verði á laggirnar á Reyðarfirði.

Rotterdamhöfn er stærsta höfn í Evrópu með gríðarmikil umsvif og þar er að finna mikla þekkingu á iðnaði og flutningum og ekki síst flutningi á slíkum orkugjöfum. Að hafa slíkan samstarfsaðila er ómetanlegt fyrir Fjarðabyggðarhafnir í þeirri vinnu sem fram undan er, enda er það markmið bæjarstjórnar Fjarðabyggðar að sveitarfélagið verði miðstöð framleiðslu grænna orkugjafa á Íslandi.