Fara í efni
16.12.2022 Fréttir

Undirritun samstarfssamnings Fjarðabyggðar og Samtakanna ´78

Deildu

,,Ég verð að hrósa Fjarðabyggð fyrir hversu fljótt og vel þetta gekk fyrir sig. Sveitarfélagið hafði samband í haust og nú er verið að skrifa hér undir," sagði Daníel Arnar, framkvæmdastjóri Samtakanna '78.

Þrír einstaklingar úr ungmennaráði voru einnig viðstödd undirritunina, þau Pálína Hrönn, Snjólfur og Elín Eik.

Fræðsla til starfsfólks, nemenda og íbúa Fjarðabyggðar

Samningurinn kveður á um að Samtökin´78 veiti Fjarðabyggð þjónustu gegn ákveðnu fjárframlagi fyrir nokkra þjónustuþætti, til að mynda:

  • Fræðslu til starfsfólks grunn- og leikskóla Fjarðabyggðar
  • Fræðslu til nemenda í grunnskólum Fjarðabyggðar
  • Fræðslu til stjórnenda Fjarðabyggðar
  • Fræðslu til félags- og frístundamiðstöðva í Fjarðabyggð
  • Fræðslu til þjálfara íþróttafélaga og starfsfólks íþróttamiðstöðva
  • Endurgjaldlausa ráðgjöf Samtakanna´78 til ungmenna og íbúa í Fjarðabyggð

Undirbúningur að fræðslustarfinu er þegar hafinn og gert ráð fyrir að fyrstu fræðslufundir fari fram í byrjun næsta árs.

Afar mikilvægt er að mannréttindi og virðing fyrir fjölbreytileika mannlífsins sé í hávegum höfð. Fjarðabyggð er barnvænt sveitarfélag og vinnur að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og er aukin meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu mjög mikilvægur þáttur í þeirri vinnu.