Flestir fjallvegir á Austurlandi eru lokaðir.
Rýmingar frá í gær á Seyðisfirði og í Neskaupstað eru óbreyttar. Veðurstofa mun meta stöðuna síðar í dag. Tilkynning verður send á þessum vettvangi í kjölfar þess. Vegir innanbæjar eru enn opnir.
Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi hvetur ferðalanga til að kanna vel með færð og veður áður en haldið er af stað. Lítið ferðaveður er í fjórðungnum sem stendur.
Minnt er á hjálparsíma Rauða krossins, 1717.