Athygli er vakin á því að Covid-bifreiðakosning fer fram á Reyðarfirði við Fjarðabyggðarhöllina að framanverðu fimmtudaginn 23. September. Kosningin hefst kl. 10.30 og stendur til kl. 17.00 og lengur ef þörf krefur. Allir sem hafa gefið sig fram við kjörstjóra fá að kjósa. Leiðbeiningar verða á staðnum en kosning gengur þannig fyrir sig að kjósandi hringir í síma 896-4743 og gefur upp kennitölu.
Kjörstjóri fyllir út fylgibréf og stimplar á kjörseðilinn eftir að kjósandi hefur sannað á sér deili og látið vita gegnum bílrúðu hvernig hann ætlar að kjósa. Að því loknu gengur kjörstjóri frá kjörgögnum í sendiumslag og setur í kjörkassa.
Covid-bifreiðakosning á Seyðisfirði hefst mánudaginn 20. september í húsnæði tollsins/hafnarinnar við Ferjuleiru á Seyðisfirði kl.15.00 og stendur til kl.17.00. Sú kosning er ætluð fyrir þá sem verða í einangrun eða sóttkví á kjördag. Aðstaðan á Seyðisfirði verður opin eftir þörfum á tímabilinu frá 15.00 til 17.00 fram á kjördag. Hringja þarf í síma 896-4743 til að fá afgreiðslu.