Fara í efni
07.04.2026 Fréttir, Menning

Úthlutun úr Menningarsjóði 2026

Deildu

Líkt og síðustu ár barst fjöldi umsókna fyrir metnaðarfull verkefni á sviði menningar í Fjarðabyggð. Stjórn Menningarstofu Fjarðabyggðar tók til umfjöllunar á fundi sínum nýverið þær umsóknir sem bárust. Alls voru þær 23 sem samtals óskuðu eftir 7.030.000 kr. Til styrkúthlutunar eru 4.000.000 kr. sem dreifist á milli þeirra 15 verkefna sem hljóta menningarstyrk.

Eftirfarandi eru upplýsingar um hvert og eitt styrktarverkefni : 

Björn Loki, Edda Karólína & Sindri Dýrason fyrir útilistaverk og vegglistarnámskeið á Stöðvarfirði í tengslum við Innsævi, þar sem unnið verður stórt veggverk á Sköpunarmiðstöðinni og ungmennum gefinn kostur á að taka þátt í skapandi ferli.
500.000,-

Mercury Maze fyrir gagnvirkt ljóslistaverk í bæjarlandslaginu á Dögum myrkurs, þar sem byggingar verða umbreyttar með myndvörpun og áhorfendur taka þátt í upplifuninni.
500.000,-

Kvæðakórinn fyrir kvæðaball og staðbundna náttúruviðburði þar sem hefðbundinn söngur, þjóðsögur og landslag fléttast saman í lifandi og þátttökumiðaðri dagskrá.
500.000,-

Eva Ísleifs fyrir verkefnið Vetrarnætur, alþjóðlega samsýningu og rannsóknarferð sem tengir saman listamenn frá Íslandi, Noregi og Grikklandi og fjallar um náttúru, helgisiði og vistfræðilegar áskoranir.
400.000,-

Sköpunarmiðstöðin fyrir leirlistanámskeið með Antoníu Berg, þar sem þátttakendur læra að vinna með staðbundin efni og þróa færni í sjálfbærri handverksiðju.
350.000,-

Le Temple fyrir áframhaldandi tónleikaröð í Tiny Church á Stöðvarfirði, þar sem boðið verður upp á aðgengilega tónlistarviðburði fyrir íbúa og gesti.
350.000,-

Haukur Ingólfsson fyrir tónlistarverkefnið Dægurlagadraumar, lifandi tónlistarskemmtun sem endurómar dægurlög 20. aldar og skapar sameiginlega upplifun fyrir ólíka aldurshópa.
300.000,-

Hlín Pétursdóttir Behrens fyrir Söngveislu á Breiðdalsvík, fjölbreytta tónlistarhátíð með óperu, ljóðum, kabarett og kyrrðarstundum sem sameinar fagfólk og heimafólk.
250.000,-

Wioleta Anna Ujazdowska fyrir verkefnið Að beygja tíma, rannsóknar- og listverkefni sem kannar skynjun tíma og rýmis með tengingu við umhverfi og samfélag Fjarðabyggðar.
200.000,-

Magnús Stefánsson fyrir útgáfu og kynningu á ljóðabók Stefaníu G. Gísladóttur, með viðburðum sem miða að því að efla aðgengi að ljóðlist og menningararfi.
150.000,-

Leifur Helgi Konráðsson fyrir ljóðaupplestraröð í tengslum við bókaútgáfu, þar sem lögð er áhersla á lifandi flutning ljóðlistar og tengingu við áhorfendur.
100.000,-

Kvæðakórinn fyrir kvæðaball og staðbundna náttúruviðburði þar sem hefðbundinn söngur, þjóðsögur og landslag fléttast saman í lifandi og þátttökumiðaðri dagskrá.

Katrín Jóhanness fyrir gerð nýrra skúlptúrverka innblásinna af handverki og efnismenningu svæðisins, sem verða sýnd á Innsævi.
100.000,-

Anna Ólöf Jansdóttir fyrir gerð nýrra landslagsmálverka í Fjarðabyggð sem endurspegla tengsl náttúru, menningar og ímyndunarafls.
100.000,-

Teresa Maria Rivarola fyrir verkefnið Hvað er heima?, með barnasmiðjum, kvennahringjum og samsýningu sem fjallar um tilfinningu fyrir heimili og samfélag.
100.000,-

Lucrezia Costa fyrir staðbundna rannsókn og listsýningu sem byggir á samtali við landslag, samfélag og sögur svæðisins.
100.000,-

 

Menningarstofa óskar styrkhöfum innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með og njóta þeirra spennandi verkefna sem framundan eru.