Verkmenntaskóli Austurlands fagnar 40 ára afmæli í ár. Alls eru 642 nemendur skráðir í nám við skólann, þar af 131 í dagskóla. Á fjórum áratugum hafa 1.832 nemendur lokið námi við VA.
Starfsemi Verkmenntaskóla Austurlands hefur tekið miklum breytingum frá því skólinn tók til starfa árið 1986. Námsframboðið hefur aukist og kennslufyrirkomulagið þróast í takt við breyttar þarfir nemenda, atvinnulífsins og samfélagsins.
Á fyrstu önn skólans stunduðu um 140 nemendur framhaldsnám við VA. Nú, 40 árum síðar, eru 131 nemandi í dagskóla en heildarfjöldinn er 642 þegar fjar-, dreif- og helgarnám er talið með.

Flestir stunda sveigjanlegt nám
Alls eru 511 nemendur utan hefðbundins dagskóla. Þeir stunda fjar-, dreif- eða helgarnám og eru ýmist skráðir í staka áfanga eða umfangsmeira nám.
Tölurnar sýna hvernig starfsemi VA hefur þróast út fyrir hefðbundið dagskólanám. Sveigjanlegt námsfyrirkomulag gerir fólki kleift að stunda nám með vinnu, óháð búsetu eða án þess að þurfa að flytja um set.
Þessar námsleiðir skipta ekki síst máli fyrir fullorðna nemendur og þá sem vilja bæta við sig menntun eða ljúka starfsréttindum samhliða vinnu.

1.832 nemendur hafa lokið námi
Samkvæmt samantekt sem unnin hefur verið vegna 40 ára afmælisins hafa 1.832 nemendur lokið námi við VA frá árinu 1986. Námslokin dreifast á meira en 40 námsbrautir.
Meðal þeirra námsbrauta sem flestir hafa lokið eru:
- Félagsfræðibraut: 214 nemendur
- Skólaliðanám: 168 nemendur
- Húsasmíði: 162 nemendur
- Náttúrufræðibraut: 143 nemendur
- Sjúkraliðanám: 133 nemendur
- Málmiðngreinar: 115 nemendur
- Rafiðnir: 54 nemendur
Þetta er aðeins hluti þeirra námsleiða sem skólinn hefur boðið upp á. Tölurnar endurspegla fjölbreytt hlutverk VA, bæði við að mennta iðn- og fagfólk til starfa og undirbúa nemendur fyrir frekara nám.
Skóli fyrir allt Austurland
VA varð til við breytingu á Framhaldsskólanum í Neskaupstað í byrjun árs 1986. Ríkið og 34 sveitarfélög í þáverandi Austurlandskjördæmi stóðu sameiginlega að stofnun skólans.
Skólanum var frá upphafi ætlað að þjóna landshlutanum öllum og gegna lykilhlutverki í iðn- og tæknimenntun á Austurlandi. Fjölbreytt námsframboð og tengsl við atvinnulífið hafa síðan verið meðal helstu einkenna hans.

Birgir Jónsson, skólameistari VA, segir mikilvægt að standa áfram vörð um skólann og þróa starfsemi hans með þarfir samfélagsins að leiðarljósi.
„Verkmenntaskóli Austurlands hefur verið hornsteinn í austfirsku samfélagi í 40 ár og nú sem endranær er mikilvægt að standa vörð um hann og þróa skólastarfið enn frekar í takt við þarfir samfélagsins,“ segir Birgir.
Afmælishátíð Verkmenntaskóla Austurlands fer fram föstudaginn 4. og laugardaginn 5. september. Nánar verður fjallað um dagskrá hátíðarinnar á vef Fjarðabyggðar á fimmtudag.

