Fara í efni
07.12.2015 Fréttir

Varað við fárviðri

Deildu

Aðgerðastjórn almannavarna á Fjörðunum hvetur fólk eindregið til að halda sig heima eftir klukkan 17 í dag og virða lokanir á vegum. Varað er við því að vera á ferðinni, nema í ýtrustu neyð. Þá ákvað aðgerðarstjórn, í ljósi fyrirliggjandi úrkomuspár, að loka Helgustaðavegi utan þéttbýlis.

Aðgerðastjórn fylgist grannt með framvindu mála og er fólk hvatt til að fylgjast með vef sveitarfélagsins og tilkynningum í fjölmiðlum.

Gert er ráð fyrir að stormurinn geri vart við sig á Austurlandi um og eftir hádegi. Veðrið mun síðan fara hratt versnandi á milli klukkan 15 og 18 og snúast í byl sem stendur yfir líklega til fyrramáls.

Þótt ekki sé gert ráð fyrir að vindhraðinn verði með því mesta á Austurlandi, gerir Veðurstofan ráð fyrir hvað mestri úrkomu hér eystra. Ekki er á þessari stundu ljóst hvort um rigningu, slyddu eða snjókomu verður að ræða á láglendi.

Sjá lokanir Vegagerðarinnar

Sjá viðvörun Veðurstofu Íslands