Fara í efni
04.02.2022 Fréttir

Vatnsveitustyrkir vegna stofnkostnaðar við vatnsveitur á vegum eigenda lögbýla

Deildu

Heimilt er að greiða árlega framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna stofnkostnaðar við vatnsveitur á vegum eigenda lögbýla, þar sem svo háttar til að hagkvæmara er að mati sveitastjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 32/2004. Heimild þessi er skv. reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum, nr. 180/2016.

Þessi heimild nær til allra lögbýla í landinu þar sem landbúnaður er stundaður í þeim mæli að talist geti búrekstur eða þáttur í búrekstri. Umsækjandi þarf að hafa ÍSAT-númer í búnaðargjaldsskyldri búgrein og virðisaukanúmer.