Fara í efni
07.04.2026 Fréttir, Menning, Oddsskarð

Vel heppnað Páskafjör lokið

Deildu

Páskafjör í Fjarðabyggð fór fram um páskana með fjölbreyttri dagskrá víða um sveitarfélagið. Þrátt fyrir að veður hafi haft áhrif á dagskrána og leitt til þess að aflýsa þurfti eða fresta nokkrum viðburðum, tókst hátíðin vel í heild sinni og var þátttaka góð á fjölmörgum viðburðum, en hátt 2500 manns heimsóttu fjallið í dymbilvikunni og um páskana.  Dagskráin spannaði meðal annars útivist, tónlist, fjölskylduskemmtun og menningarviðburði víðs vegar um Fjarðabyggð. 

Meðal viðburða voru Hipsumhaps-tónleikarnir í Frystihúsinu á Breiðdalsvík á föstudeginum langa, sem voru vel sóttir og sköpuðu frábæra stemningu,  páskasmiðja með bingói og litakósý fyrir börn og fjölskyldur vel fyrir en hún fór fram í Stríðsárasafninu á Reyðarfirði, páskaeggjaleit á Mjóeyri, Pond skim sem flutt var niður á Mjóeyri vegna veðurs og margt fleira.

Hipsumhaps spilaði á Breiðdalsvík á föstudeginum langa

Veðrið setti þó mark sitt á páskahátíðina, sérstaklega á páskadag þegar seinka þurfti opnun í Oddsskarði vegna veðurs og mikils snjós. Þegar aðstæður leyfðu fór skíða- og brettaparakeppni engu að síður fram og hlaut hún góðar viðtökur í kjölfarið á því spilaði Dj Tony fyrir gesti. 

Páskafjör endaði síðan með glæsilegri flugeldasýningu í Oddsskarði á páskadag sem var fallegur lokapunktur á viðburðaríkri og fjölbreyttri páskahátíð í Fjarðabyggð.

Aðstandendur Páskafjörs þakka öllum þeim sem komu að skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar, sem og öllum þeim sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til að gera páskana í Fjarðabyggð eftirminnilega.