Páskafjör í Fjarðabyggð fór fram um páskana með fjölbreyttri dagskrá víða um sveitarfélagið. Þrátt fyrir að veður hafi haft áhrif á dagskrána og leitt til þess að aflýsa þurfti eða fresta nokkrum viðburðum, tókst hátíðin vel í heild sinni og var þátttaka góð á fjölmörgum viðburðum, en hátt 2500 manns heimsóttu fjallið í dymbilvikunni og um páskana. Dagskráin spannaði meðal annars útivist, tónlist, fjölskylduskemmtun og menningarviðburði víðs vegar um Fjarðabyggð.
Meðal viðburða voru Hipsumhaps-tónleikarnir í Frystihúsinu á Breiðdalsvík á föstudeginum langa, sem voru vel sóttir og sköpuðu frábæra stemningu, páskasmiðja með bingói og litakósý fyrir börn og fjölskyldur vel fyrir en hún fór fram í Stríðsárasafninu á Reyðarfirði, páskaeggjaleit á Mjóeyri, Pond skim sem flutt var niður á Mjóeyri vegna veðurs og margt fleira.

Veðrið setti þó mark sitt á páskahátíðina, sérstaklega á páskadag þegar seinka þurfti opnun í Oddsskarði vegna veðurs og mikils snjós. Þegar aðstæður leyfðu fór skíða- og brettaparakeppni engu að síður fram og hlaut hún góðar viðtökur í kjölfarið á því spilaði Dj Tony fyrir gesti.
Páskafjör endaði síðan með glæsilegri flugeldasýningu í Oddsskarði á páskadag sem var fallegur lokapunktur á viðburðaríkri og fjölbreyttri páskahátíð í Fjarðabyggð.
Aðstandendur Páskafjörs þakka öllum þeim sem komu að skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar, sem og öllum þeim sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til að gera páskana í Fjarðabyggð eftirminnilega.











