Verslunarmannahelgin fór vel fram í Fjarðabyggð og var fjölbreytt dagskrá í boði fyrir fólk á öllum aldri. Að venju var bæjarhátíðin Neistaflug haldin í Neskaupstað og laðaði hún að sér fjölda gesta, bæði heimafólk, brottflutta Norðfirðinga og aðra gesti.
Þrátt fyrir að veðurspáin hafi ekki verið sérlega álitleg reyndust veðurguðirnir hátíðargestum að mestu hliðhollir. Nokkur vindur gerði vart við sig og á sunnudeginum þurfti að færa hluta dagskrárinnar inn í íþróttahúsið, en það setti ekki stórt strik í reikninginn.
Dagskrá Neistaflugs hófst miðvikudaginn 29. júlí og stóð fram á sunnudag. Boðið var upp á fjölbreytta viðburði, meðal annars tónleika, íþróttakeppnir, barnaskemmtanir, markað, hjólaferðir og fjölskyldudagskrá á hátíðarsvæðinu.
Partýbingóið í Egilsbúð á laugardagskvöldinu var vel sótt og mikil stemning meðal gesta. Þar stýrðu Tony og Sven gleðinni og Maggi Hafdal trúbador hélt uppi fjörinu að bingóinu loknu.
Hápunktur sunnudagskvöldsins var stórtónleikadagskrá á hátíðarsvæðinu. Þar komu fram Sprite Zero Klan, Jóhanna Guðrún, Emmsjé Gauti og Nýdönsk. Tónleikunum lauk með glæsilegri flugeldasýningu sem setti viðeigandi punkt við vel heppnaða hátíðarhelgi.
Regnbogahátíð var einnig haldin í Neskaupstað. Hinsegin Austurland stóð að hátíðinni, en meðal dagskrárliða voru regnbogabúð, kökukeppni, listasmiðja, gleðiganga og hátíðardagskrá í Tónspili. Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri ávarpaði gesti ásamt Valborgu Ösp Á. Warén. BLÆR og Guðmudur Rafnkell sungu nokkur lög, ásamt því að verðlaun voru veitt í kökukeppninni. Þá var regnbogagata máluð við Egilsbúð og setur hún litríkan svip á bæinn.

Óhætt er að segja að helgin hafi tekist ljómandi vel. Fjölmenni var á viðburðum og hátíðarsvæðinu og greinilegt að Neistaflug skipar áfram mikilvægan sess í sumarlífi Fjarðabyggðar. Regnbogahátíðin var sömuleiðis kærkomin viðbót og undirstrikaði mikilvægi fjölbreytileika, sýnileika og samstöðu í samfélaginu.














