Síðastliðinn föstudag var sannkölluð sögustund í Egilsbúð í Neskaupstað þegar Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur, prófessor og fyrrverandi forseti Íslands, heimsótti austfirðinga og hélt fróðlegt og áhugavert erindi um nýjustu bók sína, Vald hinna veiku – Saga landhelgismálsins 1971–1974.
Í erindinu fjallaði Guðni um efni bókarinnar og þá miklu átakasögu sem tengist útfærslu íslensku fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur. Sérstök áhersla var lögð á hlutverk Norðfirðingsins Lúðvíks Jósefssonar, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og þingmanns Austfirðinga, í baráttunni fyrir stækkun landhelginnar. Lúðvík gegndi mikilvægu hlutverki á þessum tímum og var meðal þeirra sem stóðu hvað fastast í baráttunni fyrir hagsmunum Íslands.
Guðni varpaði áhugaverðu ljósi á atburði þessara ára, samskipti Íslendinga við Breta, átökin á miðunum og þá pólitísku togstreitu sem átti sér stað innanlands í kjölfarið. Erindið gaf gestum þannig tækifæri til að kynnast sögunni frá fleiri hliðum og fá dýpri innsýn í einn merkasta kafla íslenskrar samtímasögu.
Það var virkilega ánægjulegt að sjá hversu mikinn áhuga viðburðurinn vakti en um 100 manns mættu í Egilsbúð og komu gestir víða að af Austfjörðum til að hlýða á Guðna.
Við þökkum Guðna Th. Jóhannessyni kærlega fyrir komuna, fróðlegt erindi og skemmtilega innsýn í þessa mikilvægu sögu. Einnig færum við öllum þeim sem mættu bestu þakkir fyrir komuna og fyrir að taka þátt í þessari ánægjulegu samverustund í Egilsbúð.
Að lokum viljum við hvetja alla áhugasama um að kynna sér bókina hans Guðna, en hún er fáanleg hjá flestum forlögum landsins.
