Verkmenntaskóli Austurlands heldur upp á afmæli skólans og hefjum leika á tónleikum föstudagskvöldið 4. september þar sem fyrrum nemendur skólans í gegnum árin munu sjá um að halda uppi stuðinu.
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00, frítt inn.
Þann 5. september verður afmælisdagskrá í Egilsbúð sem hefst kl. 14:00.
Strax að lokinni dagskrá verður boðið upp á kaffi og tertu í VA ásamt því að gestum gefst kostur á að skoða skólann.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest — fyrrum nemendur og starfsfólk skólans, núverandi nemendur, fjölskyldur þeirra og alla vini skólans — koma saman og fagna 40 ára afmæli Verkmenntaskóla Austurlands.
Verkmenntaskóli Austurlands fagnar 40 ára afmæli um helgina. Hátíðin hefst með tónleikum í Egilsbúð föstudagskvöldið 4. september og heldur áfram með afmælisdagskrá og opnu húsi laugardaginn 5. september.
Fyrrverandi nemendur stíga á svið
Afmælishátíðin hefst með tónleikum í Egilsbúð föstudagskvöldið 4. september. Þar sjá fyrrverandi nemendur skólans úr ýmsum árgöngum um að halda uppi stuðinu.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og er ókeypis inn.

Afmælisdagskrá og opið hús
Laugardaginn 5. september verður afmælisdagskrá í Egilsbúð og hefst hún klukkan 14:00.
Að dagskránni lokinni verður boðið upp á kaffi og tertu í Verkmenntaskóla Austurlands. Þá gefst gestum jafnframt kostur á að skoða skólann og kynna sér starfsemina.
Fyrrverandi og núverandi nemendur, starfsfólk, fjölskyldur þeirra og allir vinir skólans eru hvattir til að mæta og fagna tímamótunum saman.
Hér má finna viðburðinn á Facebook.
Hornsteinn í austfirsku samfélagi
Verkmenntaskóli Austurlands tók til starfa árið 1986 og tók þá við hlutverki Framhaldsskólans í Neskaupstað. Að stofnun skólans stóðu ríkið og sveitarfélögin á Austurlandi.
Skólinn hefur frá upphafi gegnt mikilvægu hlutverki í menntun á Austurlandi og lagað námsframboð sitt að breyttum þörfum samfélagsins.
Smári Geirsson, fyrsti skólameistari VA, hefur skrifað stutta samantekt um skólann og aðdragandann að stofnun hans. Samantekt Smára er aðgengileg á vef Verkmenntaskóla Austurlands.
„Verkmenntaskóli Austurlands hefur verið hornsteinn í austfirsku samfélagi í 40 ár og nú sem endranær er mikilvægt að standa vörð um hann og þróa skólastarfið enn frekar í takt við þarfir samfélagsins,“ segir Birgir Jónsson, skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands.
Fjarðabyggð óskar Verkmenntaskóla Austurlands til hamingju með 40 ára afmælið og hvetur íbúa og aðra vini skólans til að taka þátt í hátíðinni um helgina.
