Sundlaug Eskifjarðar er lokuð vegna viðhalds, stefnt er að opna aftur 27. ágúst. 

Fara í efni
20.08.2026 Fréttir, Skipulags- og byggingarmál

Viðhaldsframkvæmdir víða í Fjarðabyggð

Deildu
Loftmynd af Breiðdalsskóla þar sem sjá má endurnýjað þak og framkvæmdir við turn skólans.

Ýmis viðhalds- og endurbótaverkefni eru nú í gangi í og við fasteignir og mannvirki Fjarðabyggðar. Framkvæmdir standa meðal annars yfir við Breiðdalsskóla, leikskólann Dalborg og íþróttamiðstöðina á Eskifirði, Grunnskóla Reyðarfjarðar og Stríðsárasafnið á Reyðarfirði.

Breiðdalsskóla
Endurnýjun á þaki Breiðdalsskóla er langt komin. Búið er að endurnýja þakpappa en beðið er eftir fjórum glerkúplum áður en hægt verður að ljúka verkinu. Þá verður fljótlega hafist handa við endurnýjun turnsins. Framkvæmdir innandyra eru einnig hafnar og er gert ráð fyrir að þeim ljúki á næstu þremur vikum.

Leikskólinn Dalborg á Eskifirði
Endurbætur á eldri hluta Dalborgar hafa tafist lítillega en stefnt er að verklokum um mánaðamót ágúst og september. Meðal framkvæmda er lagning nýs gólfefnis og hitalagna í gólf, endurnýjun og stækkun eldhúss auk nýs kerfislofts og loftræstingar.

Grunnskóli Reyðarfjarðar
Unnið hefur verið að klæðningu á húsnæði Grunnskóla Reyðarfjarðar og er stefnt að því að þeirri framkvæmd ljúki 25. ágúst. 

Bakhlið Grunnskóla Reyðarfjarðar þar sem unnið hefur verið að endurklæðningu á B-álmu.
Unnið hefur verið að endurklæðningu á B-álmu Grunnskóla Reyðarfjarðar.

Stríðsárasafnið á Reyðarfirði
Framkvæmdir við Stríðsárasafnið halda áfram. Nú er unnið að reisa braggann og er gert ráð fyrir að því verki ljúki um 10. september. Í kjölfarið verður hafist handa við þak á þjónustubyggingunni.

Einnig er stefnt að því að hefja fljótlega gröft fyrir nýju bílahúsi og koma húsinu upp fyrir áramót. Húsið hefur þegar verið pantað og er von á því til landsins í byrjun nóvember. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir innandyra hefjist í nóvember og ljúki á vormánuðum.

Sundlaugin á Eskifirði
Í ágúst verður sundlaugardúkurinn í lauginni á Eskifirði endurnýjaður. Stefnt er að því að vinna við dúkinn hefjist 20. ágúst, ljúki 26. ágúst og að sundlaugin opni aftur 27. ágúst.

Fram að endurnýjun dúksins hefur verið unnið að hreinsun á botni laugarinnar ásamt almennu viðhaldi í og við laugina.

Samhliða því er unnið að endurbótum á kvennaklefa, meðal annars lagfæringum á fúgum, auk þess sem aðstaða fyrir fatlað fólk verður bætt.

Korthafar með aðgang utan opnunartíma komast í ræktina.