Fara í efni
09.07.2021 Fréttir

Viljayfirlýsing um grænan orkugarð á Reyðarfirði

Deildu

"Við fögnum þessari viljayfirlýsingu um uppbyggingu umhverfisvænnar iðnaðarstarfsemi á Reyðarfirði. Um er að ræða spennandi verkefni og við erum stolt af því að horft sé til Fjarðabyggðar til uppbyggingar á slíkri starfsemi. Í Fjarðabyggð er öflugt atvinnulíf og með þróun græns orkugarðs verður hægt að auka enn frekar verðamætasköpun í sveitarfélaginu. Það er verulegur ávinningur fyrir allt samfélagið í að þróa nýjar lausnir í orkumálum og skapa þannig frekari tækifæri fyrir frumkvöðla til nýsköpunar og uppbyggingar nýrrar atvinnustarfsemi," segir Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar.

Landsvirkjun stefnir að kolefnishlutleysi árið 2025 og tekur virkan þátt í alþjóðlegri baráttu gegn loftslagsvánni. Fyrirtækið vinnur eftir aðgerðaráætlun gegn losun gróðurhúsalofttegunda í eigin starfsemi en er einnig stöðugt að leita leiða til að takast á við þær áskoranir sem loftslagsbreytingum fylgja í stærra samhengi. Uppbygging græns orkugarðs á Reyðarfirði er liður í þeirri vegferð.

"Baráttan við loftslagsvána kallar á þróun nýrra lausna sem gera orkuskipti möguleg og við viljum taka þátt í því. Vonir eru bundnar við að rafeldsneyti muni gera orkuskipti í skipasiglingum möguleg og við viljum kanna kosti þess að framleiða það hér á landi. Það felast mikil tækifæri í því fyrir okkar samfélag, bæði frá umhverfis- og efnahagslegu sjónarhorni, ef við getum nýtt innlent og umhverfisvænt eldsneyti við fiskveiðar okkar og vöruflutninga. Þátttaka CIP í þessu verkefni er einnig mikilvæg því þau koma inn með mikla alþjóðlega þekkingu og reynslu af fjárfestingum í framleiðslu endurnýjanlegrar orku," segir Ríkarður Ríkarðsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá Landsvirkjun.

CIP var stofnað árið 2012 af reynslumiklum stjórnendum úr danska orkugeiranum í samstarfi við danska lífeyrissjóðinn PensionDanmark. Sjóðir CIP eru með fjárfestingar um allan heim og eiga um 100 alþjóðlegir stofnanafjárfestar aðild að þeim.

Frétt á heimasíðu Landsvirkjunar