Fulltrúar frá Gravelines heimsóttu Fáskrúðsfjörð dagana 16.–19. júlí í tilefni af Frönskum dögum. Heimsóknin var sérstaklega hátíðleg í ár þar sem hátíðin var haldin í 30. sinn og jafnframt var fagnað 35 ára vinabæjarsambandi Fáskrúðsfjarðar og Gravelines.
Bertrand Ringot, bæjarstjóri Gravelines, og Patricia Jeziorowski-Dubois, bæjarfulltrúi, voru sérstakir gestir hátíðarinnar ásamt mökum. Þau tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá ásamt fulltrúum Fjarðabyggðar, meðal annars setningu Franskra daga, kenderísgöngu, helgistund í Frönsku kapellunni, minningarathöfn og rósafleytingu.

Dagskrá heimsóknarinnar var fjölbreytt þar sem gestir heimsóttu meðal annars Franska safnið, Norðurljósasafnið, Loðnuvinnsluna og Gallerý Kolfreyju sem og Stríðsárasafnið og bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar. Þá var farið í siglingu um Fáskrúðsfjörð með björgunarbátnum Hafdísi.

„Franskir dagar og vinabæjarsamband Fáskrúðsfjarðar og Gravelines byggjast á langri og merkilegri sögu. Tengslin eiga rætur að rekja til frönsku sjómannanna sem sóttu Íslandsmið og þeirra fórna, hugrekkis og dugnaðar sem saga beggja samfélaga ber vitni um. Þessi saga lifir áfram í minningu þeirra sem fórust, í franska arfleifð Fáskrúðsfjarðar og ekki síst í þeirri djúpu og einlægu vináttu sem hefur myndast milli bæjanna tveggja. Franskir dagar heiðra þessa sameiginlegu sögu okkar,“ segir Ragnar Sigurðsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar.
Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir samskipti fólksins ekki síður mikilvæg en sameiginlega sögu sveitarfélaganna:
„Franskir dagar minna okkur á að vinátta milli Fáskrúðsfjarðar og Gravelines byggist ekki aðeins á sögu heldur líka á fólkinu sem hittist, deilir menningu sinni og skapar nýjar minningar. Það er þessi tenging sem gerir vinabæjarsambandið svo dýrmætt.“
Á laugardagskvöldinu var efnt til hátíðarkvöldverðar þar sem saman komu fulltrúar frá Gravelines og Fjarðabyggð ásamt nefnd Franskra daga, bæjarstjóra og mökum. Veitingastaðurinn Sumarlína sá um kvöldverðinn og var matseðillinn byggður á íslenskum afurðum sem fengu að njóta sín í hátíðlegri máltíð.
Í tilefni af afmælisárinu var upphafsmönnum vinabæjarsamskiptanna á Fáskrúðsfirði boðið að sitja kvöldverðinn með fulltrúum frá Gravelines. Gunnar Larsen og Albert Kemp áttu þátt í að leggja þann grunn að vinabæjarsamskiptunum sem þau byggja á í dag. Þresti Sigurðssyni, fyrrverandi sveitarstjóra Fáskrúðsfjarðar, var einnig boðið til kvöldverðarins en hann átti því miður ekki kost á að vera viðstaddur. Þröstur gegndi lykilhlutverki við stofnun vinabæjarsambandsins og undirritaði á sínum tíma bæði viljayfirlýsingu og samkomulag um vinabæjarsamskipti sveitarfélaganna.

Að venju var síðan skipst á gjöfum sem þakklætisvotti fyrir heimsóknina frá Gravelines og til að undirstrika vináttuna og langvarandi samstarf sveitarfélaganna.

Bertrand Ringot, bæjarstjóri Graveline þakkaði fyrir góðar móttökur:
„Við þökkum íslenskum vinum okkar kærlega fyrir einstaklega góðar móttökur. Í heimsókninni fengum við að kynnast fjölmörgum verkefnum sveitarfélagsins á ólíkum sviðum, ekki síst í atvinnu- og umhverfismálum. Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Gravelines á Fête des Islandais í lok september.“
Sendinefnd frá Fjarðabyggð hefur verið boðið að taka þátt í íslensku hátíðinni í Gravelines dagana 25.–28. september.










