Vinna er hafin við tvö nýstárleg orkuverkefni á Reyðarfirði. Annars vegar verður sólarorka framleidd við Fjarðabyggðarhöllina og hins vegar verður komið upp kyndistöð sem samþættir nýtingu viðarperla og varmadælu til húshitunar í byggingum Fjarðabyggðar á svæðinu.
Verkefnin eiga sér nokkurn aðdraganda en upphaf samstarfs Fjarðabyggðar, Alor og Tandraorku má rekja til ársins 2024 þegar unnið var að umsókn í Orkusjóð vegna verkefnis um nýtingu sólar- og skógarorku í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði. Verkefnið sneri að orkuskiptum í rekstri og orkusparnaði og hlaut styrk úr Orkusjóði.
Í framhaldinu var unnið áfram að útfærslu verkefnanna og gerði Fjarðabyggð í vor samninga við Alor og Tandraorku. Vinna við verkefnin hófst nú í ágúst. Með þeim er stigið skref í átt að fjölbreyttari orkunýtingu í fasteignum sveitarfélagsins og um leið aflað reynslu af lausnum sem gætu nýst víðar.

Við Fjarðabyggðarhöllina verður komið upp allt að 200 sólarsellum með allt að 90 kW uppsettu afli. Áætlað er að kerfið framleiði um 45 MWst á ári við eðlilegar rekstraraðstæður. Raforkan verður nýtt beint í Fjarðabyggðarhöllinni og framleiðslan gerð sýnileg í rauntíma á mælaborði í húsnæði sveitarfélagsins.
Stefnt er að því að sólarorkukerfið verði sett upp haustið 2026 og gangsett í kjölfarið. Fjarðabyggð mun leigja búnaðinn af Alor á grunni þeirrar raforku sem kerfið framleiðir.
„Fjarðabyggð hefur sýnt mikið frumkvæði með því að stíga þetta mikilvæga skref og verða eitt fyrsta sveitarfélagið á Íslandi til að nýta sólarorku í eigin rekstri. Með því að framleiða sjálft hluta þess rafmagns sem notað er í rekstrinum getur sveitarfélagið dregið úr kaupum á rafmagni úr kerfinu, lækkað raforkukostnað og dregið úr álagi á raforkukerfið. Fyrir okkur hjá Alor er mjög ánægjulegt að taka þátt í þessu verkefni með sveitarfélaginu og Tandraorku. Það er einmitt með verkefnum sem þessum sem við getum byggt upp reynslu af ólíkum orkulausnum og nýtt hana til að þróa sambærileg verkefni víðar,“ segir Linda Fanney Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Alor.
Samhliða þessu er hafin vinna við kyndistöð Tandraorku þar sem tveir ólíkir hitagjafar verða samþættir. Viðarperlur verða nýttar sem eldsneyti auk þess sem varmadæla verður hluti af kerfinu. Stöðin mun sjá byggingum Fjarðabyggðar á svæðinu fyrir hita, þar á meðal Fjarðabyggðarhöllinni, grunnskólanum, nýja og gamla íþróttahúsinu, leikskólanum Lyngholti og Félagslundi.

Samþætting ólíkra hitagjafa byggir á austurrískri tækni og þekkingu. Tandraorka mun eiga og reka stöðina en Fjarðabyggð greiðir fyrir mælda notkun á heitu vatni. Stefnt er að því að búnaður kyndistöðvarinnar verði að mestu kominn upp í lok sumars.
„Við höfum kappkostað að velja góðan tækjabúnað frá viðurkenndum framleiðanda til þessa verkefnis og við vonumst til þess að með þessu mikilvæga skrefi munum við geta rekið kyndistöð sem er hagstæð bæði fyrir bæjarfélagið og okkur sem framleiðendur eldsneytis og orkusala. Ég trúi að fleiri álíka verkefni komi á eftir, enda er nægt hráefni í skógum hér austanlands sem ekki eru önnur not fyrir. Fyrir okkur er afar mikilvægt að vel takist til,“ segir Einar Birgir Kristjánsson, framkvæmdastjóri Tandraorku.
Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir verkefnin áhugaverð ekki síst í ljósi aðstæðna á Reyðarfirði.
„Reyðarfjörður er kalt svæði og því er sérstaklega áhugavert að prófa hér nýjar leiðir í orkunýtingu. Með þessum verkefnum erum við bæði að leita hagkvæmra lausna fyrir rekstur fasteigna sveitarfélagsins og afla reynslu sem getur nýst okkur til framtíðar,“ segir Jóna Árný.
Verkefnin byggja þannig á samstarfi sem hófst við undirbúning umsóknar í Orkusjóð árið 2024 og er nú komið á framkvæmdarstig. Reynslan af þeim mun jafnframt gefa mikilvægar upplýsingar um hvernig ólíkar orkulausnir geta nýst við rekstur fasteigna við íslenskar aðstæður.
