Sýningin VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners eftir listakonuna Helgu Dórótheu Fannon opnaði í Þórsmörk í Neskaupstað síðastliðinn laugardag, 29. ágúst. Opnunin bauð gestum upp á áhrifaríka og fjölbreytta upplifun þar sem hreyfimyndir, hljóð, skúlptúrar og innsetningar fléttuðust saman í sýningarrýminu.

Helga hefur dvalið í Þórsmörk listamannasetri undanfarnar vikur og unnið að nýjum verkum sem eiga rætur sínar að rekja til rannsókna hennar á Völvuleiði á Hólmahálsi, milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar. Sagan af völvunni, sem sögð er hafa verndað byggðirnar við firðina í gegnum aldirnar, varð upphafspunktur að stærra verkefni þar sem minningar, dulspeki, goðafræði, landslag og persónuleg reynsla mætast.
Á meðan á dvöl Helgu á Austurlandi stóð fór hún að skrásetja ýmis fyrirbæri og augnablik sem hún varð vör við á ferðum sínum um fjórðunginn. Mynd- og hljóðupptökur, fundnir hlutir og náttúrugripir frá Neskaupstað og öðrum stöðum á Austurlandi fléttast þannig saman við rannsóknir hennar og handverk.

Í verkunum verður völvan að eins konar þræði á milli ólíkra heima. Hið hversdagslega færist yfir í eitthvað framandi, órætt eða töfrum hlaðið og mörkin milli fundinna frásagna, goðsagna og persónulegrar reynslu verða óljós. Inn í verkferlið fléttaðist einnig deildarmyrkvi á sólu sem varð á meðan Helga dvaldi eystra.
Helga Dóróthea Fannon er íslensk-sænsk-bresk kvikmyndagerðarkona og myndlistarkona sem býr og starfar milli London og Gautaborgar. Hún vinnur meðal annars með hreyfimyndir, hljóð, skrif og gjörninga og nýtir fyrirbærafræði, goðafræði, náttúru og forfeðrasögur til að rannsaka minningar, drauma, játningar og mörkin milli hins fundna og hins ímyndaða.
Sýningin er í sýningarstjórn Þórhildar Tinnu Sigurðardóttur og stendur yfir í Þórsmörk til 31. október. Opnunartímar eru föstudaga og laugardaga kl. 14:00–17:00.
