Fara í efni
05.05.2026 Fréttir, Umhverfi

Vor í Fjarðabyggð

Deildu

Fjarðabyggð boðar til árlegrar vorhreinsunar dagana 11.–24. maí. Vor í Fjarðabyggð er liður í því að hvetja íbúa til að huga að nærumhverfi sínu og taka höndum saman við að fegra bæina okkar fyrir sumarið.

Íbúar, fyrirtæki, félagasamtök og stofnanir eru hvött til að taka þátt, tína rusl, snyrta lóðir og koma garðaúrgangi í réttan farveg. Með sameiginlegu átaki komum við Fjarðabyggð í sumarbúninginn.

Garðaúrgangur sóttur við lóðamörk

Á meðan á verkefninu stendur mun starfsfólk þjónustumiðstöðva Fjarðabyggðar vera á ferðinni og hirða garðaúrgang sem íbúar setja við lóðamörk.

Garðaúrgangur getur til dæmis verið gras, lauf, greinar, afklippur af runnum og trjám og annar lífrænn úrgangur úr görðum.

Mikilvægt er að annað rusl sé ekki sett með garðaúrgangi. Brotajárn, plastkör, timbur, húsgögn, heimilissorp og annað sem ekki telst garðaúrgangur á ekki að fara í þessa söfnun.

Hægt verður að nálgast poka í þjónustumiðstöðvum Fjarðabyggðar.

Móttökustöðvar

Íbúar geta komið úrgangi á móttökustöðvar Fjarðabyggðar samkvæmt hefðbundnum opnunartímum á meðan á vorhreinsun stendur.

Laugardaginn 23. maí verða allar móttökustöðvar Fjarðabyggðar opnar frá kl. 13:00–17:00.

Íbúar eru hvattir til að ganga vel um á móttökustöðvum og virða flokkunarreglur. Gras, greinar og trjáafklippur eiga ekki alltaf að fara saman og því mikilvægt að fylgja leiðbeiningum á hverjum stað.

Moltublönduð mold í boði

 Íbúum stendur til boða að nálgast moltublandaða mold á völdum stöðum í Fjarðabyggð.

StaðurStaðsetning
NorðfjörðurVið smábátahöfnina
EskifjörðurInnan við mön Langadals
ReyðarfjörðurAustan megin við Ilmbjörkina garðyrkjustöð
FáskrúðsfjörðurInnan við Nes
StöðvarfjörðurMalarplan fyrir neðan áhaldahús
BreiðdalsvíkLangidalur

Íbúar eru beðnir um að ganga snyrtilega um svæðin og taka aðeins það magn sem nýtist til heimilisnota.

Tökum höndum saman

Vorhreinsunin er sameiginlegt verkefni okkar allra. Með því að tína rusl, snyrta garða og huga að nærumhverfinu leggjum við okkar af mörkum til að gera bæina okkar fallegri, hreinni og notalegri.

Látum hendur standa fram úr ermum og tökum saman á móti sumrinu í Fjarðabyggð.