Fara í efni
21.05.2021 Fréttir

Vor í Fjarðabyggð 2021

Deildu

Hreinsunarvikan verður dagana 21. – 31. maí 2021

Hluti af Vor í Fjarðabyggð hefur verið að vekja íbúa til umhugsunar um umhverfi sitt og hvetja þá til að taka til hendinni í görðum sínum og nær umhverfi.

Dagana 21. - 31. maí verða starfsmenn þjónustumiðstöðva Fjarðabyggðar á ferðinni að hirða upp garðaúrgang sem íbúar setja við lóðamörk.

Almennt annað rusl s.s. brotajárn, plastkör eða annað ótengt garðaúrgangi skal ekki sett saman við.

Vorbæklingur 2021

Í tenglsum við "Vor í Fjarðabyggð" hefur sveitarfélagið gefið út bækling og dreift til íbúa með gagnlegum upplýsingum um eitt og annað sem tengist vorverkunum og umhverfismálum. Í ár verður sú breyting að bæklingnum verður ekki dreift í hús, heldur verður hann aðgengilegur með rafrænum hætti á heimsíðu Fjarðabyggðar www.fjardabyggd.is og á Facebook síðu sveitarfélagsins.

Vorbæklingur - Vor í Fjarðabyggð 2021

Látum nú hendur standa fram úr ermum, öll sem eitt og sameinumst um að fegra okkar nánast umhverfi fyrir sumarið!