Fara í efni
16.03.2021 Fréttir

Yfirlýsing frá Velferðarnefnd Alþingis vegna færslu á rekstri hjúkrunarheimilanna

Deildu

Yfirlýsing frá Velferðarnefnd Alþingis


Velferðarnefnd Alþingis lýsir yfir þungum áhyggjum af þeirri stöðu sem nú er komin upp vegna færslu á rekstri hjúkrunarheimila frá sveitarfélögum til ríkisins.

Velferðarnefnd Alþingis hvetur stjórnvöld til að ganga þannig frá yfirfærslunni að starfsfólki sé tryggð áframhaldandi atvinna og réttindi þess og kjör séu tryggð líkt og fordæmi er fyrir við sambærilega yfirfærslu og að m.a. verði horft til þeirra lagareglna sem finna má í lögum um réttarstöðu starfsmanna við aðilaskipti að fyrirtækjum nr. 72/2002.

Telji stjórnvöld lagasetningu nauðsynlega er velferðar nefnd reiðubúin að koma að því og mun gera sitt til að tryggja hraðan framgangs slíks frumvarps innan nefndarinnar ef af yrði eða leggja slíkt frumvarp fram í nafni nefndarinnar. Nefndin bendir á að mikilvægt er að lausn fáist sem fyrst í málinu, enda skammur tími til stefnu, og mikilvægir hagsmunir vinnandi fólks í húfi, sem og þjónusta við viðkvæma skjólstæðinga.