Fara í efni

Frístundarheimili

Frístundaheimili Fjarðabyggðar eru starfrækt í grunnskólum hvers byggðarkjarna. Markmiðið er að bjóða börnum öruggt, uppbyggilegt og fjölbreytt frístundastarf.

Gjaldskrá

Gjaldskrá þessi á við um skólafrístund, vetrarfrístund, sumarfrístund og lengda viðveru.

Frístund Verð

Skráðar stundir frá 13:10 - 16:00

380 kr./klst.

Skráðar stundir frá 16:00 -16:30

380 kr./30 mín

Systkinaafsláttur er milli vistunargjalds á frístundaheimili og vistunargjalds í leikskóla. Greiða ber fullt gjald fyrir það barn sem er í lengstri gjaldskyldri vistun. Veittur er 50 % afsláttur fyrir annað barn. Ekkert er greitt fyrir þriðja barn.  Vistunartími getur verið breytilegur milli daga.  Vistun fram yfir klukkan 16:00 kostar 380 kr. á dag.

Frístundaheimilisgjaldið greiðist mánaðarlega. Dragist greiðsla í tvo mánuði er litið svo á, að undangenginni viðvörun, að vistuninni hafi verið sagt upp.

Uppsagnarfrestur frístundaheimilisvistunar er fyrir 20. hvers mánaðar og miðast uppsögn við 1. næsta mánaðar. Hið sama gildir um breytingar á vistunartíma.

Nemendur í 1.-4. bekk sem þurfa að bíða eftir skólaakstri, eiga rétt á gjaldfrjálsri vist á frístundaheimili, meðan beðið er.

Reglur um niðurfellingu frístundaheimilisgjalda

Ef um veikindi barns er að ræða sem vara 4 vikur eða lengur er hægt að fella niður helming af frístundaheimilisgjöldum gegn framvísun læknisvottorðs.

Forföll langveikra barna og niðurfelling gjalda vegna þeirra verði metin af grunnskólastjóra í hvert sinn.
 
Gjaldskrá fyrir frístundarheimili gildir frá 1. apríl 2026

Gjaldskrá þessi á við um skólafrístund, vetrarfrístund, sumarfrístund og lengda viðveru.

Frístund Verð

Frístund (skráðar stundir frá lokum skóladags til kl. 16:00)

380 kr./klst.

Frístund (vistun eftir kl. 16:00)

380 kr./15 mín

Systkinaafsláttur er milli vistunargjalds á frístundaheimili og vistunargjalds í leikskóla. Greiða ber fullt gjald fyrir það barn sem er í lengstri gjaldskyldri vistun. Veittur er 50 % afsláttur fyrir annað barn. Ekkert er greitt fyrir þriðja barn.  Vistunartími getur verið breytilegur milli daga.  Vistun fram yfir klukkan 16:00 kostar 380 kr. á dag.

Frístundaheimilisgjaldið greiðist mánaðarlega. Dragist greiðsla í tvo mánuði er litið svo á, að undangenginni viðvörun, að vistuninni hafi verið sagt upp.

Uppsagnarfrestur frístundaheimilisvistunar er fyrir 20. hvers mánaðar og miðast uppsögn við 1. næsta mánaðar. Hið sama gildir um breytingar á vistunartíma. 

Nemendur í 1.-4. bekk sem þurfa að bíða eftir skólaakstri, eiga rétt á gjaldfrjálsri vist á frístundaheimili, meðan beðið er.

Afslættir vegna tekjuviðmiða

Einstaklingar sem falla undir tekjuviðmið 0-9.000.000 kr. getur fengið 50% afslátt af vistunargjaldi. 

Sambúðarfólk sem fellur undir tekjuviðmið 0-13.600.000 kr. getur fengið 50% afslátt af vistunargjaldi. 

Miðað er við meðaltekjur samkvæmt staðgreiðsluskrá fyrir síðustu 12 mánuði áður en sótt er um afslátt. 

Sótt er um afslátt vegna tekjuviðmiða rafrænt í íbúagátt og með umsókn ber að skila staðgreiðsluskrá fyrir síðustu 12 mánuði. Endurnýja þarf umsókn árlega að loknu sumarfríi, eigi síðar en 20. ágúst ár hvert.