Fara í efni

Skíðasvæði

Oddsskarð á milli Eskifjarðar og Norðfjarðar er eitt skemmtilegasta skíðasvæði landsins. Á skíðasvæðinu eru tvær toglyftur og barnalyfta, góð aðstaða fyrir brettafólk og skíðaskáli með veitingaaðstöðu.

Fréttir - opnun

Opnunartími á veturna er mánudaga til föstudaga kl. 16:00 til 19:00 og kl. 10:00 - 16:00 um helgar. Opið er svo framarlega sem nægur snjór er í brekkunum. 

Í boði er að leigja skíði, skó og stafi ásamt snjóbretti og brettaskó. Hægt er að skoða gjaldskrá hér að neðan.

 

Við birtum allar tilkynningar varðandi opnun á facebook og Instagram síðu Oddsskarð. 

Gjaldskrá