Fara í efni

Grenndargámar

Grenndargámar eru staðsettir við allar móttökustöðvar nema í Breiðdalsvík. Grenndargámurinn í Breiðdalsvík er staðsettur við áhaldahúsið.

Grenndargámar fyrir gler, málma og textíl eru staðsettir á eftirfarandi stöðum: 

  • Norðfjörður: Við móttökustöð, Naustahvammur 51
  • Eskifjörður: Við móttökustöð, Strandgata 6
  • Reyðarfjörður: Við móttökustöð, Hjallanes 8
  • Fáskrúðsfjörður: Við móttökustöð, Nesvegur 13
  • Stöðvafjörður: Við móttökustöð, utan við þorpið.
  • Breiðdalur: Við áhaldahús, Selnes 14

Flöskumóttaka

Allar upplýsingar um flöskumóttöku í Fjarðabyggð má finna á vef Endurvinnslunnar

Nytjahlutir og nytjamarkaðir:

  • Steinninn – Norðfjörður:
    • Aðsetur: Egilsbraut 4
    • Opið: Miðvikudaga 16:00–18:00 og laugardaga 13:00–15:00

Gjaldskrá

1.gr 

Samþykktir, lög og reglur

Fjarðabyggð annast sorphirðu frá öllu íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Bæjarstjórn skal innheimta gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir meðhöndlun úrgangs samkvæmt samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð nr. [ ], sbr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.

2.gr. 

Sorphirðugjald

Fjarðabyggð felur verktaka framkvæmd sérstakrar söfnunar úrgangs frá öllu íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu sem er flokkað í fjóra flokka í þrjú eða fjögur ílát:

Þriggja tunnu kerfi 1:

  • 240 L tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang.
  • 240 L tunna fyrir pappír og pappa
  • 240 L tunna fyrir plast

Þriggja tunnu kerfi 2: 

  • 240 L tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang.
  • 240 L tunna fyrir pappír og pappa
  • 140 L tunna fyrir plast

Heimili geta valið að hafa fjögur ílát en greiða þá aukagjald fyrir fjórðu tunnuna (blandaðan úrgang) samkvæmt neðangreindri gjaldskrá.

Fjögurra tunnu kerfi::

  • 240 L tunna fyrir blandaðan úrgang
  • 140 L tunna fyrir lífrænan úrgang
  • 240 L tunna fyrir pappír og pappa
  • 240 L tunna fyrir plast
Gjaldflokkur nr.Tegund úrgangs / ílátsStærð ílátsGjald kr. / ílát á ári
530240Tvískipt tunna240 L36.232
510240Blandaður240 L39.500
510660Blandaður660 L108.625
511100Blandaður1100 L181.625
520140Lífrænn úrgangur140 L14.245
550240Pappír og pappi240 L14.000
550660Pappír og pappi660 L38.500
551100Pappír og pappi1100 L64.500
560140Plast140 L11.000
560240Plast240 L14.000
560660Plast660 L38.500
561100Plast1100 L64.500

Íbúðir í fjölbýli greiða hlutfall af kostnaði sorpíláta miðað við eignarhlut í sameign, sbr. 43. og 45. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús, og reglugerð nr. 910/2000. Útreikningur hlutfallstölu skal byggður á reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum. Stærðir og fjöldi íláta mega ekki vera minni en sem nemur 140 lítrum fyrir pappír og pappa, plast og blandaðan úrgang pr. íbúð. Við hvert fjölbýli skal að lágmarki vera 140 lítra ílát undir matarleifar.

3. gr.

Fast gjald

Fast gjald er lagt á allar fasteignir sveitarfélagsins árlega til að standa straum af veittri þjónustu tengdri málaflokknum og er ekki beintengt úrgangsmagni, s.s. umsýslu, fræðslu, hreinsun rusls á víðavangi, rekstri grenndarstöðva og aðgengi að söfnunarstöðvum með gjaldfrjálsan úrgang.

Álagningin er á fasteignir í a-, b-, og c- lið samkvæmt 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Gjaldflokkur nr.Tegund úrgangs / ílátsStærð ílátsGjald kr. / ílát á ári
590001a matshlutarHeimili

25.000

590002b og c matshlutar0 - 500 fm2

65.000

590003b og c matshlutar500 - 1000 fm2

85.000

590004b og c matshlutar1000 - 2500 fm2

105.000

590005b og c matshlutar2500 > fm2

125.000

590006c matshlutihúsnæði án atvinnustarfsemi

35.000

Gjaldið skal innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi sorpgjalds hinn sami og fasteignagjalda. 

4. gr.

Önnur gjöld

Önnur gjöld sem heimilt er að innheimta vegna auka þjónustu:

  • Umsýslugjald er greitt í hvert skipti sem óskað er eftir breytingum á skráningu íláta. Umsýslugjaldið er 4.000 kr./skipti.

5. gr.

Þjónustugjöld á söfnunar- og móttökustöðvum 

Rekstraraðili annast rekstur á söfnunar- og móttökustöðvum fyrir úrgang í sveitarfélaginu og setur sér gjaldskrá vegna þessa. Gjöld rekstraraðila söfnunarstöðva fyrir gjaldskyldan úrgang mega að hámarki vera 25% hærri en gjöld fyrir urðun blandaðs úrgangs á urðunarstað samkvæmt 2. gr. í gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð.

Gjaldskyldur úrgangur er almennt óendurvinnanlegur úrgangur til urðunar. Dæmi um gjaldskyldan úrgang eru: blandaður heimilisúrgangur og grófur úrgangur s.s. húsgögn, gluggar og stærri úrgangur, timbur og hart plast. Matarleifar eru einnig gjaldskyldar en fara þó ekki í urðun.

Ekki er tekið gjald fyrir endurvinnanlegan úrgang sem ber úrvinnslugjald. Dæmi um gjaldfrjálsan úrgang eru: plastumbúðir, pappi og pappír, málmar, hjólbarðar, raftæki og ýmis spilliefni.

6. gr.

Innheimta

Gjalddagar gjalda skv. 2. gr. fylgja reglum um gjalddaga fasteignagjalda og er skipt jafnt niður á þá. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Gjalddagi gjalda skv. 2. og 3. grein er 1. hvers mánaðar og eindagi 15 dögum síðar.

Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

7. gr.

Staðfestingar og gildistaka

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af bæjarstjórn Fjarðabyggðar með stoð í samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð nr.[ ], sbr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum. Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1536/2024.