1.gr
Samþykktir, lög og reglur
Fjarðabyggð annast sorphirðu frá öllu íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu. Bæjarstjórn skal innheimta gjald samkvæmt gjaldskrá þessari fyrir meðhöndlun úrgangs samkvæmt samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð nr. [ ], sbr. 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, og 23. gr. laga um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003.
2.gr.
Sorphirðugjald
Fjarðabyggð felur verktaka framkvæmd sérstakrar söfnunar úrgangs frá öllu íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu sem er flokkað í fjóra flokka í þrjú eða fjögur ílát:
Þriggja tunnu kerfi 1:
- 240 L tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang.
- 240 L tunna fyrir pappír og pappa
- 240 L tunna fyrir plast
Þriggja tunnu kerfi 2:
- 240 L tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang.
- 240 L tunna fyrir pappír og pappa
- 140 L tunna fyrir plast
Heimili geta valið að hafa fjögur ílát en greiða þá aukagjald fyrir fjórðu tunnuna (blandaðan úrgang) samkvæmt neðangreindri gjaldskrá.
Fjögurra tunnu kerfi::
- 240 L tunna fyrir blandaðan úrgang
- 140 L tunna fyrir lífrænan úrgang
- 240 L tunna fyrir pappír og pappa
- 240 L tunna fyrir plast
| Gjaldflokkur nr. | Tegund úrgangs / íláts | Stærð íláts | Gjald kr. / ílát á ári |
|---|---|---|---|
| 530240 | Tvískipt tunna | 240 L | 36.232 |
| 510240 | Blandaður | 240 L | 39.500 |
| 510660 | Blandaður | 660 L | 108.625 |
| 511100 | Blandaður | 1100 L | 181.625 |
| 520140 | Lífrænn úrgangur | 140 L | 14.245 |
| 550240 | Pappír og pappi | 240 L | 14.000 |
| 550660 | Pappír og pappi | 660 L | 38.500 |
| 551100 | Pappír og pappi | 1100 L | 64.500 |
| 560140 | Plast | 140 L | 11.000 |
| 560240 | Plast | 240 L | 14.000 |
| 560660 | Plast | 660 L | 38.500 |
| 561100 | Plast | 1100 L | 64.500 |
Íbúðir í fjölbýli greiða hlutfall af kostnaði sorpíláta miðað við eignarhlut í sameign, sbr. 43. og 45. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús, og reglugerð nr. 910/2000. Útreikningur hlutfallstölu skal byggður á reglugerð um eignaskiptayfirlýsingar, útreikning hlutfallstalna o.fl. í fjöleignarhúsum. Stærðir og fjöldi íláta mega ekki vera minni en sem nemur 140 lítrum fyrir pappír og pappa, plast og blandaðan úrgang pr. íbúð. Við hvert fjölbýli skal að lágmarki vera 140 lítra ílát undir matarleifar.
3. gr.
Fast gjald
Fast gjald er lagt á allar fasteignir sveitarfélagsins árlega til að standa straum af veittri þjónustu tengdri málaflokknum og er ekki beintengt úrgangsmagni, s.s. umsýslu, fræðslu, hreinsun rusls á víðavangi, rekstri grenndarstöðva og aðgengi að söfnunarstöðvum með gjaldfrjálsan úrgang.
Álagningin er á fasteignir í a-, b-, og c- lið samkvæmt 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
| Gjaldflokkur nr. | Tegund úrgangs / íláts | Stærð íláts | Gjald kr. / ílát á ári |
|---|---|---|---|
| 590001 | a matshlutar | Heimili | 25.000 |
| 590002 | b og c matshlutar | 0 - 500 fm2 | 65.000 |
| 590003 | b og c matshlutar | 500 - 1000 fm2 | 85.000 |
| 590004 | b og c matshlutar | 1000 - 2500 fm2 | 105.000 |
| 590005 | b og c matshlutar | 2500 > fm2 | 125.000 |
| 590006 | c matshluti | húsnæði án atvinnustarfsemi | 35.000 |
Gjaldið skal innheimt með fasteignagjöldum og er gjalddagi sorpgjalds hinn sami og fasteignagjalda.
4. gr.
Önnur gjöld
Önnur gjöld sem heimilt er að innheimta vegna auka þjónustu:
- Umsýslugjald er greitt í hvert skipti sem óskað er eftir breytingum á skráningu íláta. Umsýslugjaldið er 4.000 kr./skipti.
5. gr.
Þjónustugjöld á söfnunar- og móttökustöðvum
Rekstraraðili annast rekstur á söfnunar- og móttökustöðvum fyrir úrgang í sveitarfélaginu og setur sér gjaldskrá vegna þessa. Gjöld rekstraraðila söfnunarstöðva fyrir gjaldskyldan úrgang mega að hámarki vera 25% hærri en gjöld fyrir urðun blandaðs úrgangs á urðunarstað samkvæmt 2. gr. í gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð.
Gjaldskyldur úrgangur er almennt óendurvinnanlegur úrgangur til urðunar. Dæmi um gjaldskyldan úrgang eru: blandaður heimilisúrgangur og grófur úrgangur s.s. húsgögn, gluggar og stærri úrgangur, timbur og hart plast. Matarleifar eru einnig gjaldskyldar en fara þó ekki í urðun.
Ekki er tekið gjald fyrir endurvinnanlegan úrgang sem ber úrvinnslugjald. Dæmi um gjaldfrjálsan úrgang eru: plastumbúðir, pappi og pappír, málmar, hjólbarðar, raftæki og ýmis spilliefni.
6. gr.
Innheimta
Gjalddagar gjalda skv. 2. gr. fylgja reglum um gjalddaga fasteignagjalda og er skipt jafnt niður á þá. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga, séu gjöldin ekki greidd á eindaga. Gjalddagi gjalda skv. 2. og 3. grein er 1. hvers mánaðar og eindagi 15 dögum síðar.
Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.
7. gr.
Staðfestingar og gildistaka
Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af bæjarstjórn Fjarðabyggðar með stoð í samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð nr.[ ], sbr. 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir með síðari breytingum. Gjaldskráin öðlast gildi 1. janúar 2026. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá nr. 1536/2024.
