Fara í efni

Bæjarráð

197. fundur
11. maí 2010 kl. 09:00 - 11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Innkaupamál á pappír og umslögum 2010
Málsnúmer 1004097
Þennan lið fundarins sátu fjármálastjóri og sérfræðingur á fjármálasviði. Lagt fram minnisblað frá 11.maí vegna innkaupamála. Fjármálastjóri fór yfir efni minnisblaðs. Tekið fyrir á næsta fundi.
2.
Atvinnumál skólafólks og atvinnulausra
Málsnúmer 1005089
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra frá 10.maí um vinnumál skólafólks og atvinnulausra ungmenna. Bæjarráð samþykkir fyrirkomulag vinnuskóla Fjarðabyggðar sumarið 2010 eins og það er framsett í minnisblaði og heimilar umhverfissviði að auglýsa störf.  Umhverfisstjóra er jafnframt falið að vinna áfram að fyrirkomulagi átaksvinnu sumarið 2010 eins og það er fram sett í minnisblaði.   
3.
Stuðningur við dagforeldrakerfið
Málsnúmer 1003097
Minnisblað fræðslustjóra og félagsmálastjóra frá 11.maí um stuðning við dagforeldrakerfið á Norðfirði. Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og vísar kostnaðarhluta til endurskoðunar fjárhagsáætlunar 2010.
4.
Aukning á stofnfé Sparisjóðs Norðfjarðar
Málsnúmer 2008-11-21-1815
Bréf Fjármálaeftirlitsins frá 5.maí lagt fram til upplýsinga en þar kemur fram að FME hefur samþykkt að Fjarðabyggð fari með allt að 25% eignarhlut í Sparisjóði Norðfjarðar.
5.
Fundagerð 90.fundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Málsnúmer 1005056
Fundargerð lögð fram til kynningar.
6.
Sala á Álfinum 2010
Málsnúmer 1005077
Beiðni SÁA um kaup Fjarðabyggðar á álfum.  Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni.
7.
Framleiga á gamla húsnæði Knellunnar að Strandgötu 44
Málsnúmer 1004154
Díana vék af fundi vegna þessa liðar. Lögð fram drög að leigusamningi við Díönu Mjöll Sveinsdóttur vegna Strandgötu 44 á Eskifirði. Bæjarráð samþykkir að framleigja húsnæðið fram til 1.júní 2011.
8.
Öldrunarþjónustunefnd - 19
Málsnúmer 1005003F
Fundargerð lögð fram.
9.
Umhverfis- og skipulagsnefnd - 43
Málsnúmer 1005002F
Fundargerð lögð fram.