Bæjarráð
198. fundur
18. maí 2010
kl.
09:00
-
11:00
í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði
Fundargerð ritaði:
Gunnlaugur Sverrisson
forstöðumaður stjórnsýslu
Dagskrá
1.
Innkaupamál á pappír og umslögum 2010
Minnisblað fjármálasviðs frá 11.maí er lagt var fram á síðasta fundi. Bæjarráð samþykkir að allur pappír og umslög fyrir allar stofnanir Fjarðabyggðar verði keyptur í gegnum fjármálasvið í ljósi hagstæðustu verða. Þá samþykkkir bæjarráð að samningi þeim sem er í gildi við Olíuverzlun Íslands hf. verði sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara og fjármálasviði falið að leita hagstæðustu verða í hverjum vöruflokki.
2.
Snorraverkefnið 2010
Þátttaka í Snorraverkefninu og beiðni um styrk. Safnastofnun Fjarðabyggðar mun taka einstakling í starfsþjálfun/vinnu í þrjár vikur í sumar. MÍF tók málið fyrir á fundi 17.maí og sá sér ekki fært að styðja við verkefnið fjárhagslega. Forstöðumanni Safnastofnunar var falið að hafa samband við verkefnastjóra Snorraverkefnis og bjóða Jesse Chisholm-Beatson sjálfboðastarf hjá Safnastofnun Fjarðabyggðar.
3.
100 örnefni - útgáfa á ferðahandbók
4.
Uppgjör gatnagerðagjalda og lóðaskil
5.
Samgönguáætlun 2009-2012
6.
Gamla kirkjan á Eskifirði
Grein Hildu G. Birgisdóttur um Gömlu kirkjuna á Eskfirði lögð fram til upplýsinga en greinin birtist nýlega í Fréttablaðinu. Forstöðumanni stjórnsýslu falið að afla upplýsinga frá eigendum kirkjunnar um áform þeirra í ljósi styrks frá húsafriðunarnefnd.
7.
Félagsmálafundur nr.33-fundagerð
Fundargerð lögð fram.
8.
Félagsmálafundur nr. 34-fundagerð
Fundargerð lögð fram.
9.
Leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum á Austurlandi - Beiðni um umsögn
Framlagt bréf Orkustofnunar frá 17.maí er varðar umsögn Fjarðabyggðar um umsókn Platina Resources Ltd. um leyfi til leitar og rannsókna á gulli og öðrum málmum á Austurlandi. Vísað til umhverfis- og skipulagsnefndar til umsagnar.
10.
Helstu framkvæmdir og breytingar á stjórnsýslu Fjarðabyggðar 2006 - 2010 - Minnisblað
Framlagt til upplýsinga minnisblað bæjarstýru frá 17.maí.